- Auglýsing -
- Auglýsing -

Evrópudeild karla – 16-liða úrslit – leikir og staðan

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Keppni í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik hófst í kvöld. Leikið er í fjórum fjögurra liða riðlum. Liðin taka með sér úrslit leikja úr riðlakeppni 32-liða úrslita sem lauk í byrjun desember. T.d. þá voru Hannover-Burgdorf og Górnik Zabrze saman í riðli í 32 liða úrslitum. Þau mætast ekki aftur þótt þau séu saman í riðli.

Leikið verður heima og að heiman, alls fjórar umferðir. Eftir það fara sigurlið hvers riðils beint áfram í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti mætast heima og heiman. Sem dæmi má nefna er að liðið sem verður í öðru sæti í riðli eitt mætir liðinu sem verður í þriðja sæti í riðli tvö. Samanlagður sigurvegari fer í átta liða úrslit.

Nokkir Íslendingar leika með eða koma að þjálfun liðanna sem eru í 16-liða úrslitum. Hér fyrir neðan eru úrslit fyrstu umferðar sem leikin voru í síðdegis og í kvöld auk stöðunnar í hverjum riðli.

Myndskeið: Orri Freyr og Teitur Örn í sigurliðum

Viktor og félagar unnu í Hannover – Óðinn Þór markahæstur

1. riðill:
Hannover-Burgdorf – Nantes 32:38 (17:18).
– Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari H. Burgdorf.
– Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot í marki Nantes, 32%.

Górnik Zabrze – Rhein-Neckar Löwen 29:26 (12:14).
– Arnór Snær Óskarsson og Ýmir Örn Gíslason leika með Rhein-Neckar Löwen. Hvorugur skoraði mark í leiknum.

Staðan:

Nantes3201102:934
H.Burgdorf320198:954
RN-Löwen310287:932
Górnik Zabrze310286:922


2. riðill:
Skjern – Gorenje 45:31 (22:16).
RK Nexe – IK Sävehof 29:28 (16:13).
– Tryggvi Þórisson var leikmannahópi Sävehof en skoraði ekki að þessu sinni.

Staðan:

RK Nexe320198:864
Skjern3201103:1004
Sävehof311192:913
Gorenje301293:1091

3. riðill:
Kadetten Schaffhausen – Vojvodina 27:24 (15:13).
– Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur hjá Kadetten með átta mörk.

Flensburg – Bjerringbro/Silkeborg 38:28 (21:11).
– Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg.

Staðan:

Flensburg3201108:854
Kadetten320184:944
Vojvodina310275:812
Bj./Silkeborg310282:892


4. riðill:
Constanta – Füchse Berlin 29:32 (15:14).

Sporting – Dinamo Búkarest 35:33 (17:18).
– Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur hjá Sporting með níu mörk.

Staðan:

F. Berlin330098:916
Sporting320197:904
Constanta310286:942
Dinamo Búk.300395:1010
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -