- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: FH eltir Selfoss – Ída skoraði 13 mörk – úrslit og staðan

FH-ingar fagna sigri í kvöld. Mynd/Brynja T. - FH - handbolti
- Auglýsing -

FH fór upp að hlið Selfoss í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld. FH vann stórsigur á Fjölni, 26:9, í Kaplakrika. Emilía Ósk Steinarsdóttir átti stórleik og skoraði 11 mörk auk þess sem Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir var í miklum ham og varði 15 skot. Fjölni tókst aðeins að skora þrjú mörk í síðari hálfleik.

Staðan í hálfleik var 11:6 fyrir FH.

FH-ingar hafa þar með átta stig eftir fjóra leiki og fara svo sannarlega vel af stað undir stjórn Árna Stefáns Guðjónssonar sem tók við þjálfun í sumar.

Margar mjög góðar myndir Brynju T., er að finna á Facebook-síðu FH handbolti.


Víkingur er eitt fjögurra liða ásamt Selfossi, FH og Gróttu, sem virðist ætla að vera í sérflokki í Grill 66-deild kvenna. Víkingar stimpluðu sig inn í kapphlaupið í efri hluta deildarinnar með sannfærandi sigri á HK í Safamýri í kvöld, 29:26.

Ída Bjarklind Magnúsdóttir lék HK-inga grátt og skoraði 13 mörk. Víkingur hefur þar með sex stig að loknum fjórum umferðum eins og Grótta sem vann ungmennalið Vals í gærkvöld.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Víkingur – HK 29:26 (14:11).
Mörk Víkings: Ída Bjarklind Magnúsdóttir 13, Auður Brynja Sölvadóttir 5, Hafdís Shizuka Iura 4, Díana Ágústsdóttir 2, Valgerður Elín Snorradóttir 2, Áróra Eir Pálsdóttir 1, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1, Katrín Hallgrímsdóttir 1.
Varin skot: Tara Sól Úranusdóttir 10, Signý Pála Pálsdóttir 1.
Mörk HK: Aníta Eik Jónsdóttir 9, Katrín Hekla Magnúsdóttir 5, Inga Fanney Hauksdóttir 4, Anna Valdís Garðarsdóttir 3, Aníta Björk Bárðardóttir 2, Amelía Laufey G. Miljevic 2, Freyja Van Putte 1.
Varin skot: Tanja Glóey Þrastardóttir 9, Þórfríður Arinbjarnardóttir 1.

FH – Fjölnir 26:9 (11:6)
Mörk FH: Emilía Ósk Steinarsdóttir 11, Thelma Dögg Einarsdóttir 3, Svava Lind Gísladóttir 2, Dagný Þorgilsdóttir 2, Karen Hrund Logadóttir 2, Birna Íris Helgadóttir 2, Embla Jónsdóttir 1, Telma Medos 1, Ena Car 1, Eva Gísladóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 15, Sigurdís Sjöfn Freysdóttir 3.
Mörk Fjölnis: Sara Björg Davíðsdóttir 4, Azra Cosic 2, Eyrún Ósk Hjartardóttir 1, Sara Kristín Pedersen 1, Díana Sif Gunnlaugsdóttir 1.
Varin skot: Þyrí Erla Sigurðardóttir 7, Oddný Björg Stefánsdóttir 4.

Tengt efni:

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Grill 66karla: Fjórði sigur Fjölnismanna er staðreynd

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -