- Auglýsing -
- Auglýsing -

Halldór Jóhann flytur heim og tekur við þjálfun HK

Halldór Jóhann Sigfússon tekur við þjálfun karlaliðs HK í sumar. Mynd/HK
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild HK hefur ráðið Halldór Jóhann Sigfússon sem næsta aðalþjálfara meistaraflokks karla. Samningurinn er til þriggja ára. Halldór Jóhann tekur við starfinu í sumar af Sebastian Alexanderssyni og Guðfinni Kristmannssyni. Greint var frá því fyrir nokkru að þeir láti af störfum í vor þegar samningur þeirra rennur sitt skeið á enda.

HK tilkynnti um komu Halldórs Jóhanns í kvöld.

Halldór Jóhann kemur til HK frá danska úrvaldsdeildarliðinu Nordsjælland Håndbold en hann var þar áður þjálfari úrvalsdeildarliðs TTH Holstebro. Halldór Jóhann hefur einnig þjálfað lið Selfoss, Fram og FH hér heima auk yngri landsliða ásamt því að hafa verið þjálfari landsliðs Barein á HM árið 2021.

„Stjórn handknattleiksdeildar HK þykir mikill fengur að fá jafn reyndan þjálfara til liðs við félagið og er ráðning hans liður í því að styrkja enn frekar meistaraflokk karla,“ segir í tilkynningu HK.

Tengdar fréttir:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -