Fréttatilkynning frá Handboltaskólanum
Handboltaskólinn er fyrir íslenska krakka á aldrinum 13-16 ára og er þetta þrettánda árið sem skólinn er haldinn. Skólinn er bæði fyrir stráka og stelpur.
Ferðin næsta sumar verður 22. – 29.júlí. Skólinn kostar um kr. 235.000 og er allt innifalið, flug, gisting, fullt fæði, rútuferðir, tvær æfingar á dag, fyrirlestrar, videofundir, bolur merktur skólanum o.fl.
Íslenskir þjálfarar við skólann verða Árni Stefánsson þjálfari hjá FH, Stefán Árnason þjálfari hjá Aftureldingu, Vilhjálmur Halldórsson, yfirþjálfari hjá Stjörnunni, Andri Snær Stefánsson þjálfari hjá KA, Jóhann Ingi Guðmundsson unglingaþjálfari og markmannsþjálfari hjá Haukum, Örn Þrastarson þjálfari hjá Selfossi og það gætu fleiri bæst í hópinn.
Um er að ræða æfingabúðir í eina viku þar sem krakkarnir búa í íþróttamiðstöð í þýska bænum Haldensleben, skammt fyrir utan Magdeburg og æfa handknattleik við toppaðstæður.
Tvær handboltaæfingar eru á hverjum degi auk þess sem farið í fjölmarga aðra þætti sem tengjast handboltanum, styrktaræfingar, liðleikaæfingar og æfingar til að minnka líkur á meiðslum.
Áhersla er lögð á að bæta tækni krakkanna, auka leikskilning og samvinnu við aðra leikmenn. Æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og einnig er lagt mikið upp úr liðsheildinni. Þetta er drauma umhverfi fyrir unga handboltamenn sem vilja ná langt.
Í handboltaskólanum er lögð mikil áhersla á markmannsþjálfun. Við erum með markmannsþjálfara sem sér alfarið um markmennina. Á hverri æfingu er sérstakur tími fyrir þá, þar sem farið er í grunnæfingar og tæknina, svo eitthvað sé nefnt. Undanfarin ár hefur verið gífurlega gaman að fylgjast með markmönnunum í skólanum okkar, því á einungis einni viku hafa þeir náð að bæta sig mikið og auka mikið við tækni í markinu.
Á hverjum degi verða fyrirlestrar þar sem krakkarnir eru frædd um ýmsa hluti sem skipta máli fyrir þá sem vilja ná langt í handbolta, svo sem heilbrigt líferni, næringu, hugarfar, markmiðssetningu og fleira. Þá verða videofundir þar sem verður farið í leikfræði og horft á myndir frá leikjum með meðal annars með SC Magdeburg og íslenska landsliðinu.
Í ferðinni er farið í hálfs dags ferð til Magdeburg. Hópnum er boðið að koma og horfa á æfingu hjá stórliði SC Magdeburg, það verða 3 íslenskir leikmenn á næsta keppnistímabili hjá félaginu, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson. Krakkarnir fá að fylgjast með hvernig þeir bestu í heiminum æfa og hvað þeir þurfa að leggja á sig til að skara fram úr. Þetta er gott tækifæri fyrir krakkana til að fá innsýn í líf atvinnumanns í handbolta og sjá hvernig hlutirnir eru gerðir hjá bestu liðum heims. Krakkarnir fá að hitta leikmennina, fá að láta taka myndir af sér með þeim og fá hjá þeim eiginhandaráritanir.
Allar upplýsingar gefur Árni Stefánsson
GSM: 8627576 Netfang: [email protected]