- Auglýsing -
Eftir sex ára fjarveru hefur handknattleiksmaðurinn Hjörtur Ingi Halldórsson gengið á ný til liðs við Hauka. Allt síðan Hjörtur Ingi, sem er 27 ára gamall, kvaddi félagið fyrir sex árum hefur hann leikið með HK þar sem hann hefur verið í veigamiklu hlutverki.
„Ég er ótrúlega spenntur að snúa aftur í uppeldisfélagið mitt Hauka og hlakka til að gefa allt í komandi verkefni með liðinu,“ er haft eftir Hirti Inga í tilkynningu Hauka.
„Það er gleðiefni fyrir Hauka að fá uppalda leikmenn aftur til liðs við félagið og mun koma Hjartar Inga gera gott Haukalið enn betra og hjálpa liðinu að keppast um alla þá titla sem í boði eru næstu árin,“ segir í tilkynningu Hauka.
- Auglýsing -



