- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Kapphlaupið hefst á Hlíðarenda í kvöld

- Auglýsing -

Fyrsti úrslitaleikur Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla verður háður í kvöld í N1-höll Vals á Hlíðarenda. Viðureignin hefst klukkan 19.30 og verður í beinni útsendingu á Handboltapassanum og eflaust í opinni dagskrá hjá Símanum.

Ellefu dagar eru liðnir síðan Valur lauk undanúrslitaeinvígi sínu við KA með sigri í þriðju viðureign liðanna, 38:34, í N1-höllinni.

FH batt enda á undanúrslitarimmuna við Hauka fyrir viku með naumum sigri, 36:35, í fjórða leik liðanna.


Valur er deildarmeistari Olísdeildar en FH hafnaði í öðru sæti einu stigi á eftir Val.

FH vann fyrri viðureign liðanna í Olísdeildinni í vetur, 32:27, í N1-höllinni 11. september. Valur svaraði fyrir sig með sigri í Kaplakrika, 34:29, 5. desember.

Mættust síðast fyrir 9 árum

Síðast mættust Valur og FH í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn fyrir níu árum. Valur hafði betur, 3:2, í vinningum talið. Valur, sem hafnaði í 7. sæti Olísdeildar vorið 2017, vann oddaleikinn í Kaplakrika sunnudaginn 21. maí 2017, 27:20.

Enginn úr Íslandsmeistaraliði Vals leikur enn með liði félagsins. Hins vegar eru þrír leikmenn silfurliðs FH enn þá að leika með Hafnarfjarðarliðinu; Ágúst Birgisson, Halldór Ingi Jónasson og Jón Bjarni Ólafsson.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -