Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC gerðu sér lítið fyrir og unnu Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í kvöld, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakeppni sem Bergischer HC vann, 5:4.
Magdeburg hefur aðeins tapað einum leik í þýsku 1. deildinni á keppnistímabilinu.
Bergischer HC mætir Füchse Berlin í úrslitaleik á morgun í Lanxess Arena í Köln þar sem undanúrslitaleikirnir í dag fóru einnig fram.
Füchse Berlin lagði Lemgo, 36: 31, í fyrri viðureign undanúrslita eftir hádegið.
Í hnífjöfnum leik Bergischer HC og SC Magdeburg var staðan jöfn í hálfleik, 11:11 og 22:22 eftir 60 mínútur. Framlengingu lauk með jafntefli, 4:4. Þar með var gripið til vítakeppni. Hvort lið tók sex vítaköst í vítakeppninni. Noah Beyer tryggði Bergischer HC sigurinn eftir að Matthias Musche hafði brugðist bogalistin.
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur Íslendinganna hjá Magdeburg með fimm mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk en Elvar Örn Jónsson skoraði ekki mark.
Felix Claar var markahæstur hjá Magdeburg með átta mörk og Noah Beyer skoraði sjö mörk fyrir Bergischer HC.



