- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Obba, Þórey, Ágúst. Berta, Gauti, Rapid sektað

Þórey Rósa Stefánsdóttir leikmaður Fram og íslenska landsliðsins. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Þorbjörg Gunnarsdóttir, Obba, liðsstjóri kvennalandsliðsins í handknattleik mun að vanda standa vaktina með kvennalandsliðinu heimsmeistaramótinu sem hefst í lok mánaðarins. Obba var einnig liðsstjóri landsliðsins síðast þegar það tók þátt í HM fyrir 12 árum í Brasilíu. Hún hefur reyndar fylgt landsliðinu eftir sem liðsstjóri um langt árabil og ævinlega með allt sitt á hreinu. 
  • Obba, Þórey Rósa Stefánsdóttir leikmaður og Ágúst Þór Jóhannsson er þau einu úr HM hópnum 2011 sem verða í HM hópnum 2023. Ágúst er nú aðstoðarþjálfari en hann var landsliðsþjálfari fyrir 12 árum. 
  • Berta Rut Harðardóttir og samherjar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir Kungälvs HK, 22:21, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í gær. Berta Rut skoraði tvö mörk. Síðari leikurinn fer fram í Kristianstad á laugardaginn. Samanlagður sigurvegari í leikjunum tveimur tekur sæti í undanúrslitum. 
  • Framarinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson varð því miður að draga sig út úr finnska landsliðinu í handknattleik vegna meiðsla á hægri handlegg. Finnska landsliðið mætir landsliði Bretlands í tveimur leikjum í forkeppni HM 2025. Fyrri viðureignin verður í dag en sú síðari á laugardaginn. Gauti hefur leikið sex leiki með finnska landsliðinu á árinu og hefur skorað í þeim 16 mörk. 
  • Tíu landslið voru skráð til leiks í forkeppninni en ísraelska liðið tekur ekki þátt eins og til stóð. Þar af leiðandi er landslið Lúxemborgar komið áfram á næsta stig undankeppni HM. 
  • Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur sektað rúmenska handknattleiksliðið, Rapid Búkarest um 2.000 evrur, tæplega 300 þúsund króna, vegna í óviðunandi hegðunar stuðningsmanna liðsins meðan á viðureign Rapid og Krim Ljubljana í Meistaradeild Evrópu stóð yfir í lok mars á þessu ári. Einnig var rúmenska liðið aðvarað vegna þess að það sá ekki til þess að taka frá VIP-sæti á leiknum fyrir forráðamenn Krim. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -