- Auglýsing -
- Sveinn Jóhannsson skoraði sjö mörk þegar Noregsmeistarar Kolstad unnu smáliðið Rapp, 53:17, í fyrstu umferð bikarkeppninnar í gær á heimavelli Rapp, Husebyhallen, sem er í næsta nágrenni við Kolstad Arena í Þrándheimi.
- Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tvö mörk úr vítaköstum. Sveinn og Benedikt gengu til liðs við Kolstad í sumar og var þetta fyrsti leikur þeirra félaga í keppni norska handknattleikssambandsins.
- Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad er frá keppni vegna meiðsla eins og handbolti.is sagði frá á dögunum.
- Keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Kolstad sækir Runar heim suður í Sandefjord.
- Elías Már Halldórsson þjálfari Fredrikstad Bkl. fagnaði einnig sigri í gærkvöldi í norsku bikarkeppninni. Lið hans vann grannliðið Østsiden Fredrikstad, 41:20, og innsiglaði þar með sæti í næstu umferð bikarkeppninnar í kvennaflokki.
- Auglýsing -