„Maður á örugglega eftir að kunna vel að meta það síðar meir að hafa lagt sig fram og tekið þátt í úrslitaleikjum í Evrópukeppni,“ segir Vignir Stefánsson leikmaður Vals í handknattleik en hann er einn leikmanna Vals sem mætir gríska liðinu Olympiacos í úrslitaleik Evrópubikarkeppninnar í handknattleik í N1-höll Vals á Hlíðarenda. Flautað verður til leiks klukkan 17. Enn má fá aðgöngumiða eftir því sem næst verður komist þegar þessi grein birtist að morgni leikdags.
„Það er ótrúlega gaman að spila Evrópuleik á Hlíðarenda. Ég hef gert það nokkrum sinnum á síðustu árum. Stemningin er engri lík eins og margoft hefur komið í ljós í leikjum okkar, bæði í Evrópudeildinni í fyrri og í undanförnum heimaleikjum, meðal annars gegn Steaua Búkarest og Baia Mare,” segir Vignir og bætir við.
Valur – Olympiacos – miðasala.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2024/05/438100396_965680121787707_8967110705288910955_n-1024x683.jpg)
Frábær stemning
„Umgjörðin er alltaf að eflast og batna. Stemningin er frábær enda stendur félagið mjög vel að leikjunum. Það er gæshúðarmóment að taka þátt í þessu, hvort heldur utan vallar sem innan,“ segir Vignir Stefánsson sem telur sennilegt að leikurinn við Olympiacos í dag verði síðasta viðureign hans með Val í Evrópukeppni.
Sjá einnig:
Verðum að eiga okkar allra besta leik
Fengu undanúrslitaleik frestað vegna Íslandsferðar