Patrekur Guðni Þorbergsson, markvörður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Nýi samningurinn gildir til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029.
Patrekur Guðni er 19 ára gamall og hefur leikið með HK alla tíð. Hann hefur æft með yngri landsliðum Íslands.
Róbert Örn Karlsson er á förum frá HK og Jovan Kukobat er að verða samningslaus. Í markvarðamálum HK er því það eina sem er ljóst fyrir næsta tímabil að Patrekur Guðni Þorbergsson og Brynjar Vignir Sigurjónsson verji mark liðsins.
„Patrekur er uppalinn í HK og er skýrt dæmi um þann grunn sem félagið byggir á. Að sjá leikmann úr eigin röðum halda áfram í HK búningnum skiptir miklu máli fyrir félagið og styrkir enn frekar þá vegferð sem við erum á.
Það verður sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Patrek taka næstu skref með HK á komandi árum,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.



