- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Pettersen í strandboltann – alls ekki fyrst frá Íslandi

- Auglýsing -

Susanne Pettersen leikmaður KA/Þórs hefur verið valin í norska landsliðið í strandhandbolta sem kemur saman til æfinga 5. til 8. mars undir stjórn Katinka Haltvik Tvilde.

Alls ekki fyrst

Þótt strandhandbolti hafi ekki náð fótfestu hér á landi þá er Pettersen alls ekki fyrsti leikmaðurinn sem leikur með íslensku félagsliði sem valinn er til þátttöku með erlendu landsliði í þessari nýlegu íþróttagrein.

Eins og reglulegir lesendur handbolta.is rekur vafalaust minni til þá hefur Ihor Kopyshynskyi, leikmaður Aftureldingar, leikið sumar eftir sumar með landsliði Úkraínu á Evrópu- og heimsmeistaramótum í strandhandbolta og gert það gott.

Staðið í stafni

Norska kvennalandsliðið í strandhandbolta hefur lengi verið í fremstu röð í Evrópu. Auk þess hefur það staðið í stafni baráttu fyrir viðunandi keppnisbuxum kvenfólks í íþróttinni sem nýtur vaxandi vinsælda víða um heim. Hefur m.a. komið til skoðunar að strandhandbolti verði keppnisgrein á Ólympíuleikum.

Sekt fyrir að hundsa reglur um bíkinibuxur

Pink býðst til að greiða buxnasekt þeirra norsku

Reglur um keppnisbuxur kvenna í strandhandbolta rýmkaðar

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -