- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sandra best í Þýskalandi

Sandra Erlingsdóttir. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Sandra Erlingsdóttir var valin besti leikmaður 1. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik sem fram fór um síðustu helgi. Sandra fór á kostum þegar hún og liðsfélagar í TuS Metzingen kjöldrógu liðsmenn Sport-Union Neckarsulm, 34:20.


Sandra skoraði níu mörk og átti fjórar stoðsendingar í leiknum og var markahæst á leikvellinum. Sannarlega frábær byrjun hjá landsliðskonunni.

„Í svona sterkri deild er þetta markmið sem maður þorir varla að setja sér,“ sagði Sandra í sjöunda himni þegar handbolti.is hafði samband við hana í dag.

„Næst er að halda áfram eftir þetta,“ sagði Sandra sem er á öðru ári með TuS Metzingen sem er í suðvesturhluta Þýskalands.

Vaxandi hlutverk

Sandra er leikstjórnandi Metzingen. Hún segir hlutverk sitt heldur hafa vaxið innan liðsins á undanförnu ári. Meiri þátttaka í varnarleiknum skilar henni mikilvægu hlutverki í hraðaupphlaupum og seinni bylgju upphlaupum þar sem hraði og útsjónarsemi Söndru fær notið sín.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -