- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þorsteinn Leó hefur skoraði flest mörk til þessa

Þorsteinn Leó Gunnarsson leikmaður Porto. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Mosfellingurinn Þorsteinn Leó Gunnasson er markahæsti leikmaður Olísdeildar karla þegar 13 umferðum er lokið af 22. Hann hefur skorað 99 mörk, eða 7,6 mörk að jafnaði í leik.

Þorsteinn Leó hefur ekki skorað úr vítaköstum ólíkt flestum öðrum sem eru í hópi þeirra efstu á listanum yfir þá markahæstu.


Hinn þrautreyndi handknattleiksmaður hjá KA, Einar Rafn Eiðsson, er næstur á eftir Þorsteini Leó með 96 mörk. Haukamaðurinn Guðmundur Bragi Ástþórsson er í þriðja sæti. Hann hefur skorað 90 mörk.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, Aftureldingu, verst Aroni Pálmarssyni, FH. Mynd/J.L.Long

Rúnar Kárason, Fram, sem var efstur á blaði síðast þegar handbolti.is birti lista yfir þá markahæstu, er í fjórða sæti með 84 mörk. Rúnar hefur leikið einum leik færra en þeir þrír sem eru fyrir ofan hann.

Hér fyrir neðan eru þeir 24 leikmenn sem skoraði hafa 50 mörk eða fleiri. (Þeir sem hafa leikið færri en 13 leiki eru merktir með skýringum).

Nafn:Félag:Mörk:
Þorsteinn Leó GunnarssonUMFA99
Einar Rafn EiðssonKA96
Guðmundur Bragi ÁstþórssonHaukum90
Rúnar Kárason*Fram84
Ágúst Ingi ÓskarssonGróttu81
Reynir Þór StefánssonFram78
Elmar ErlingssonÍBV77
Jakob Ingi StefánssonGróttu68
Hergeir GrímssonStjörnunni65
Ísak GústafssonVal65
Ott VarikKA65
Hjörtur Ingi HalldórssonHK64
Benedikt Gunnar ÓskarssonVal63
Árni Bragi EyjólfssonUMFA60
Blær HinrikssonUMFA59
Starri Friðriksson***Stjörnunni59
Einar Bragi AðalsteinssonFH58
Jóhannes Berg AndrasonFH57
Aron Pálmarsson**FH55
Einar Sverrisson*Selfossi53
Daniel Esteves VieiraÍBV52
Tandri Már KonráðssonStjörnunni52
Sigtryggur Daði RúnarssonÍBV51
Ívar Logi StyrmissonFram50

*hefur leikið 12 leiki.
** hefur leikið 11 leiki.
*** hefur leikið 8 leiki.

Einar Rafn bestur í Olísdeildinni fram til þessa

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -