-Auglýsing-

Dagskráin: Spenna ríkir fyrir lokumferð Grill 66-deildar kvenna

- Auglýsing -

Síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Mikil spenna ríkir í toppbaráttunni. HK stendur best að vígi. Liðið hefur tveggja stiga forskot á Gróttu en þarf að fá a.m.k. annað stigið út viðureign við Fjölni í Kórnum í kvöld til þess að halda efsta sætinu. Efsta liðið færist upp í Olísdeildina og hefur þar með sætaskipti við Selfoss sem féll úr deildinni í gær.


Grótta, sem er tveimur stigum á eftir HK, hreppir efsta sætið með sigri Fram 2 að því tilskildu að HK misstigi sig gegn Fjölni. Grótta hefur sterkari stöðu í innbyrðis leikjum við HK endi liðin jöfn að stigum.

Einnig er barátta um þriðja sæti Grill 66-deildarinnar. Liðið sem hafnar í fjórða sæti deildarinnar mætir Stjörnunni í umspili Olísdeildar. Þau sem hafna í öðru og þriðja sæti eigast við í hinni viðureign undanúrslita umspilsins. Víkingur og FH standa jöfn að stigum í þriðja til fjórða sæti.

KA/Þór sækir heim Fram

Einnig verður einn leikur í Olísdeild kvenna. Fram og KA/Þór mætast á heimavelli Fram klukkan 17. Víst er að liðin hafna í fimmta og sjötta sæti deildarinnar. Úrslit leiksins breyta því engu um endanlega röð liðanna í deildinni.

Leikir dagsins

Grill 66-deild kvenna, lokaumferð:
Myntkaup-höllin: Afturelding – Víkingur.
N1-höllin: Valur 2 – FH.
Hertzhöllin: Grótta – Fram 2.
Kórinn: HK – Fjölnir.
-Leikirnir hefjast klukkan 18.

Staðan í Grill 66-deildum.

Olísdeild kvenna, lokaumferð:
Lambhagahöllin: Fram – KA/Þór, kl. 17.

Staðan í Olísdeild kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -