- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagskráin: Barist um sæti í Olísdeildinni

- Auglýsing -

Í kvöld fer fram fyrsti leikur í viðureign Stjörnunnar og Gróttu í umspili um eitt sæti í Olísdeild kvenna. Stjarnan reynir að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu á meðan Grótta freistar þess að hrifsa sætið af Garðbæingum.

Leikurinn fer fram í Heklu höllinni í Garðabæ og hefst klukkan 19. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sæti í Olísdeildinni. Tapliðið leikur í Grill 66 deildinni.


Stjarnan hafnaði í sjöunda og næstneðsta sæti Olísdeildarinnar með því að gera jafntefli í síðustu tveimur umferðunum. Grótta hafnaði í öðru sæti Grill 66 deildarinnar eftir mikla baráttu við HK um toppsætið.

Í undanúrslitum umspilsins vann Stjarnan 2:0 sigur á FH og Grótta vann Víking Reykjavík sömuleiðis 2:0.

Leikur kvöldsins:

Olísdeild kvenna, umspil, úrslit:
Heklu höllin: Stjarnan – Grótta kl. 19

Umspil Olís kvenna 2026: leikjadagskrá og úrslit

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -