Leikið verður til þrautar í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld þegar ÍBV og Haukar mætast í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik. Liðin hafa tvo vinninga hvort. Viðureignin hefst klukkan 18 og verður send út beint á Handboltapassanum fyrir þá sem ekki hafa tök á að vera vettvangi leiksins í Vestmannaeyjum í kvöld.
Úrslit leiksins í kvöld skera úr um hvort það verður ÍBV eða Haukar sem mæta Val í úrslitum Íslandsmótsins. Fyrsti úrslitaleikurinn er áformaður í N1-höllinni á Hlíðarenda á laugardag. Valur á heimaleikinn í úrslitum hvort heldur sem andstæðingurinn verður ÍBV eða Haukar.
Viðureignir ÍBV og Hauka í undanúrslitum hafa verið einstaklega spennandi og skemmtilegar.
Haukar unnu fyrsta leikinn sem fram fór í Vestmannaeyjum fyrir nærri tveimur vikum, 29:26, eftir að hafa verið öflugri á endasprettinum.
ÍBV skoraði fjögur síðustu mörkin í annarri viðureign liðanna laugardaginn 18. apríl í Kuehne+Nagel höllinni og vann með eins marks mun, 29:28.
Grípa varð til tveggja framlenginga til þess að knýja fram sigur á annan hvorn veginn í þriðju viðureign liðanna í Vestmannaeyjum síðasta miðvikudag. Í háspennuleik hafði ÍBV betur, 38:37.
Haukar jöfnuðu einvígið með nokkuð öruggum sigri á laugardaginn í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum, 26:23.
ÍBV lék síðasta til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna fyrir þremur árum. Haukar hafa náð í úrslit tvö undanfarin ár en eins og ÍBV 2023 tapaði liðið fyrir Val í úrslitarimmu.



