Fjórði úrslitaleikur ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í Vestmannaeyjum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Valur hefur tvo vinninga en ÍBV einn. Þrjá vinninga þarf til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Valur á þar með möguleika á að vinna Íslandsmeistaratitilinn í Eyjum með sigri í viðureigninni í kvöld og endurtaka þar með leikinn frá vorinu 2023 þegar leikmenn Vals tóku við Íslandsbikarnum á fjölum íþróttamiðstöðvarinnar.
ÍBV vann öruggan sigur í þriðju viðureigninni við Val á laugardaginn, 35:27. Endurtaki ÍBV leikinn í kvöld jafnar liðið einvígið, 2:2, í vinningum talið. Oddaleikur verður þá á Hlíðarenda á mánudaginn. Gefin verður góð hvíld milli leikja.
Útsending frá leiknum í Vestmannaeyjum í kvöld verður í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans og væntanlega einnig hjá Handboltapassanum.



