- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Golla í erfiðri stöðu

- Auglýsing -

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og línumaður SG Flensburg-Handewitt, er í ansi sérstakri stöðu fyrir leik liðsins gegn MT Melsungen í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Hann gengur til liðs við uppeldisfélag sitt Melsungen í sumar.

Möguleikinn á sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili gerir stöðu Golla erfiða. Þrjú af fjórum liðum í undanúrslitum Evrópudeildarinnar eru frá Þýskalandi.


Verði sigurvegari keppninnar frá Þýskalandi fær það lið að öllum líkindum þriðja sætið í Meistaradeildinni, en tvö efstu lið þýsku 1. deildarinnar komast í keppnina.

Markmiðið að kveðja með titli

Golla stendur því frammi fyrir möguleikanum á því að kveðja Flensburg með bikar og um leið sæti í Meistaradeildinni. Vinni Melsungen leik liðanna á morgun aukast hins vegar líkurnar á því að framtíðar vinnuveitendur hans komist í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Sjálfum finnst Golla málið ekki ýkja flókið.


„Markmið mitt var að kveðja með titli. Þetta er síðasti möguleikinn sem ég fæ til þess. Það er auðvitað sérstakt fyrir mig persónulega að snúa aftur til uppeldisfélagsins í sumar en um helgina og í þessar 60 mínútur hugsa ég ekki um það. Allir munu reyna að ná í sem best úrslit,“ sagði Golla við Handball World.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -