Einar Bragi Aðalsteinsson varð í kvöld sænskur meistari í handknattleik með liði sínu, IFK Kristianstad. Hann skoraði 10 mörk í þriggja marka sigri IFK Kristianstad á Malmö, 41:38, í fjórða úrslitaleik liðanna um meistaratitilinn. IFK vann þrjár viðureignir en Malmö-liðið eina.
Leikurinn í kvöld var háður í Malmö Arena að viðstöddum nærri 5.900 áhorfendum í hreint rífandi góðri stemningu. Kristianstad vann sænsku bikarkeppnina á sama stað fyrr á leiktíðinni.
Þetta er í tíunda skipti sem IFK Kristianstad vinnur sænska meistaratitilinn og sá fyrsti síðan 2023.
Auk Einars Braga með 10 mörk var Axel Månsson atkvæðamikill með 12 mörk. Hann kveður félagið í sumar.
Nikola Roganovic skoraði 13 mörk fyrir HK Malmö.
Þar með hafa íslenskir handknattleiksmenn orðið sænskir meistarar í handknattleik karla og kvenna. Á sunnudaginn varð Elín Klara Þorkelsdóttir sænskur meistari með IK Sävehof.


