- Auglýsing -
Rakel Dórothea Ágústsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin. Rakel kemur til Aftureldingar frá Stjörnunni hvar hún hefur leikið síðustu þrjú ár.
Rakel Dórothea er hægri handar skytta sem er uppalin hjá HK. Rakel hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands.
„Við erum gríðarlega stolt af því að Rakel hafi valið að semja við Aftureldingu og vilji taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er fram undan,“ segir í tilkynningu Aftureldingar í dag.
- Auglýsing -


