Eyjapeyinn Egill Oddgeir Stefánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Egill er örvhentur og fór mikinn í Grill 66-deildinni í vetur og skoraði m.a. 88 mörk með HBH (Handknattleiksbandalag Heimaeyjar). Hann lék einnig með ÍBV í Olísdeildinni.
„Egill...
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu í dag á heimavelli fyrsta úrslitaleiknum við HC Kriens-Luzern um meistaratitilinn í handknattleik karla í Sviss, 37: 33. Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten með níu mörk, eitt þeirra úr...
Blomberg-Lippe tryggði sér í dag oddaleik við Borussia Dortmund um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með sigri í annarri viðureign liðanna á heimavelli, 28:27. Dortmund vann fyrsta leikinn með sömu markatölu fyrir viku. Oddaleikur liðanna fer fram eftir viku...
Elín Klara Þorkelsdóttir er sænskur meistari í handknattleik kvenna með liði sínu IK Sävehof eftir sigur á meisturum síðasta árs, Skara HF, 29:28, í þriðja úrslitaleik liðanna í Partille í dag. Um sannkallaða maraþonviðureign var að ræða því ekki...
Meistarar SC Magdeburg létu Hauk Þrastarson og liðsfélaga í Rhein-Neckar Löwen ekki stöðva sig á sigurgöngu í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru atkvæðamiklir í þriggja marka...
Óvíst er hvað tekur við hjá landsliðsmanninum Bjarka Má Elíssyni í sumar þegar samningur hans við ungverska meistaraliðið One Veszprém rennur út. Félagið tilkynnti í gær, það sem legið hefur fyrir allt síðan í haust, að hann hyrfi á...
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk í sjö marka tapi IFK Kristianstad í viðureign við Malmö, 42:35, í gær. Um var að ræða aðra viðureign liðanna í úrslitum um sænska meistaratitilinn. Staðan er nú jöfn, hvort lið hefur einn...
Orri Freyr Þorkelsson skoraði fimm mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum, í 12 marka sigri Sporting Lissabon á Benfica, 34:22, í gær í lokaumferð úrslitakeppni efstu fjögurra liða portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikurinn skipti ekki miklu máli því Sporting...
Liðsmenn Rúnars Sigtryggssonar stigu í kvöld stórt skref í áttina til þess að halda sæti sínu í þýsku 1. deildinni er þeir lögðu HC Erlangen, 29:26, á heimavelli. HSG Wetzlar hefur þar með tyllt sér í 16. sæti deildarinnar...
Benedikt Gunnar Óskarsson fór hamförum í sigri Kolstad á Drammen í fyrstu viðureign liðanna um sigurlaunin í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag, 34:30. Leikið var í Þrándheimi. Benedikt Gunnar skoraði níu mörk, ekkert þeirra úr vítaköstum. Hann...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF eru komnir í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handknattleik karla. Þeir unnu GOG, 33:26, í annarri viðureign liðanna í dag. Leikið var í Arena Svendborg, heimavelli GOG á Fjóni.
Donni...
Einar Rafn Eiðsson hefur skrifað undir eins árs samning við handknattleiksdeild FH. Einar Rafn, sem hefur leikið með KA undanfarin fimm ár, hefur alls leikið 262 leiki fyrir Fimleikafélagið. Hann gekk til liðs við FH sumarið 2012 og lék...
Danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson hefur tekið ákvörðun um að leika með næst efstu deildarliðinu HØJ í heimalandi sínu á næstu leiktíð. Ákvörðun hans kemur mörgum á óvart þótt það hafi legið fyrir síðan í vetur að Andersson hafi samið...
Handknattleikssamband Serbíu hefur ákveðið að leikmenn og þjálfari karlalandsliðsins skipti á milli sín 150 þúsund evrum, jafnvirði ríflega 21 milljónar kr. Eru það verðlaun til hópsins fyrir að tryggja Serbíu þátttökurétt á HM karla á næsta ári. Serbneska landsliðið...
Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, sem gekk til liðs við Selfoss í upphafi nýliðinnar leiktíðar, hefur ákveðið að framlengja vist sína í bænum. Þar af leiðandi hefur hefur hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Selfoss.
Emelía Ósk er átján ára gömul...