Tilkynnt var í dag að Aron Pálmarsson verði aðalþjálfari karlaliðs FH frá og með næsta keppnistímabili. Hann tekur við af Sigursteini Arndal sem verið hefur aðalþjálfari FH-liðsins í sjö ár. Sigursteinn fer í hlutverk það sem Aron hefur sinnt...
Hákon Daði Styrmisson er genginn til liðs við Aftureldingu. Kemur hann á frjálsri sölu eftir hálfs árs dvöl hjá ÍBV og skrifar undir þriggja ára samning í Mosfellsbænum.
Hákon Daði er 29 ára gamall vinstri hornamaður sem er mikill markaskorari....
Öðrum úrslitaleik RK Vojvodina og RK Partizan um serbneska meistaratitilinn í gærkvöldi var hætt eftir aðeins 14 mínútna leik. Stuðningsmenn Partizan fleygðu meðal annars reyksprengjum inn á keppnisvöllinn og særðu með því leikmann Vojvodina og annan dómara leiksins.
Stuðningsmenn Partizan...
„Ég er gríðarlega vonsvikin út í niðurstöðu HSÍ. Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi,“ segir Hafdís Renötudóttir landsliðskona og markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals í viðtali við Sýn/Vísir. Hafdís er mjög ósátt við það hvernig HSÍ og aganefnd tóku...
Eins og undanfarin ár heldur handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan.
Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskarla og...
Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Kadetten Schaffhausen eru komnir með bakið upp á vegg í baráttunni um meistaratitilinn í Sviss. Í kvöld töpuðu þeir öðru sinni fyrir HC Kriens-Luzern í úrslitum. Að þessu sinni var munurinn á liðunum...
Tumi Steinn Rúnarsson hefur samið við austurríska handknattleiksliðið HSG XeNTiS Lipizzanerheimat fyrir næsta keppnistímabil. Félagið greindi frá komu hins 26 ára gamla leikstjórnanda í dag. Tumi Steinn hefur undanfarin tvö ár leikið með Alpla Hard og á þeim tíma...
Kolstad gjörsigraði Drammen HK í síðari úrslitaleik liðanna í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í Drammenshallen í dag, 39:24. Kolstad vann þar með úrslitakeppnina og öðlast þar með rétt til þess að sækja um keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu...
Andri Þór Helgason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, HK. Hann var einn mikilvægasti leikmaður Kópavogsliðsins á síðustu leiktíð og skoraði m.a. 92 mörk í 22 leikjum HK í Olísdeildinni auk sex marka í tveimur...
Handknattleiksdeild FH hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag. Efni er m.a. þjálfaramál meistaraflokks karla. Væntanlega verður tilkynnt um ráðningu Arons Pálmarssonar í starf aðalþjálfara FH-liðsins. Fregnir um að Aron taki við af Sigursteini Arndal hafa verið uppi síðan...
Áform Handknattleikssambands Íslands um að halda lokahóf næsta laugardagskvöld hafa lognast út af vegna áhugaleysis. Sambandið segir frá þessu í tilkynningu í dag. Stefnt er á að halda uppskeruhátíð í næstu viku, líkt og undanfarin ár, þar sem viðurkenningar...
Mathias Gidsel er mikið í því að slá met, bæði með danska landsliðinu og Füchse Berlín. Eitt met hefur hann þó ekki enn náð að slá með danska liðinu. Það er enn í eigu Nikolaj Jacobsen, þjálfara Danmerkur.
Jacobsen skoraði...
Maik Machulla, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, hefur greint frá því að félagið hafi gjarna viljað semja við Hauk Þrastarson til lengri tíma en raunin varð. Selfyssingurinn hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í þýsku 1. deildinni.
Haukur skrifaði í...
Í þýskum miðlum er mikið rætt og ritað um ákvörðun þýska handknattleikssambandsins að framlengja samning Alfreðs Gíslasonar, sem hefur þjálfað karlalandsliðið frá árinu 2020 og unnið til tvennra silfurverðlauna; á Ólympíuleikunum 2024 og EM 2026.
Handball World ákvað að rýna...
Blær Hinriksson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við þýska félagið DHfK Leipzig og tekur því slaginn áfram með liðinu, væntanlega í þýsku B-deildinni.
Leipzig er á botni þýsku 1. deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti...