- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Andrea, Díana og Elín eru þýskir meistarar – feta í fótspor Kristbjargar

Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir unnu í dag þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með Blomberg-Lippe er liðið lagði Borussia Dortmund í oddaleik um titilinn, 30: 26. Andrea, Díana og Elín feta þar með í...

Naumt tap hjá Donna og félögum í fyrsta úrslitaleiknum

Niklas Landin var hetja Aalborg Håndbold í fyrsta úrslitaleik liðsins við Skanderborg AGF um danska meistaratitilinn í handknattleik. Hann varði vítakast Johan Hansen á síðustu sekúndu og kom þar með í veg fyrir að viðureignin færi í framlengingu. Aalborg...

Hannes gefur ekkert eftir

Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Hann er einn af rótgrónum Gróttumönnum og hefur verið fyrirliði undanfarin ár. Hannes á 216 leiki að baki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319...
- Auglýsing -

Lokahóf: Garðar Ingi og Szöke best hjá FH

Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði í gær. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað. Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar. Meistaraflokkur karla:Besti leikmaður: Garðar Ingi...

Molakaffi: Uscins, Reistad, Donni, Andreasson, skiptar skoðanir

Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins hefur samið við frönsku meistarana Paris Saint-Germain frá og með næstu leiktíð. Uscins, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með Hannover-Burgdorf í fjögur ár og á þeim tíma fest sig í sessi sem einn...

Óðinn Þór og félagar brotlentu – réttindalaus þjálfari meistaranna

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen brotlentu gegn HC Kriens-Luzern í úrslitaviðureignum um meistaratitilinn í Sviss. Kadetten, sem verið hefur meistari fjögur síðustu ár og vann deildina með fáheyrðum yfirburðum í vetur, tapaði þrisvar sinnum fyrir HC...
- Auglýsing -

Arnar Freyr og Reynir Þór leika til úrslita í Evrópudeildinni

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika til úrslita með MT Melsungen í Evrópudeild karla í handknattleik á morgun. Þeir tóku þátt í sigri Melsungen í dag á Flensburg í undanúrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg, 37:30. Melsungen...

Dagur Árni kominn í KA á nýjan leik

Dagur Árni Heimisson hefur snúið aftur heim í KA að lokinni eins árs veru hjá Val. Frá þessu greinir KA í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum í dag. Það voru stórtíðindi fyrir ári þegar Valur keypti Dag Árna frá KA. Hann...

Karlar – helstu félagaskipti 2026

Eins og undanfarin ár heldur handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskarla og...
- Auglýsing -

Bruno framlengir samning sinn hjá KA

Markvörðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Bruno, sem er 24 ára, kom af krafti ungur inn í markið hjá meistaraflokksliði KA veturinn 2020-2021. Hann hefur síðan leikið 143 leiki fyrir KA í...

Lögreglan sendir tvö lið á Norðurlandamótið

Ísland sendir karla- og kvennalið til þátttöku á Norðurlandamóti lögreglunnar sem hefst í Stafangri í Noregi mánudaginn 1. júní. Mótið stendur yfir fram á fimmtudag. Íslensku liðin eru á vegum Íþróttasambands lögreglumanna, ÍSL. Þjálfarar íslensku liðanna eru Árni Friðleifsson...

Arnór Þór stýrði Bergischer til áframhaldandi veru í efstu deild

Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann, innsiglaði áframhaldandi veru í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri á lánlausu liði HC Erlangen, 32:26, í Nürnberg. Bergischer HC endurheimti sæti sitt í 1. deild...
- Auglýsing -

Kom ekkert við sögu í fyrsta sigurleiknum

One Veszprém vann fyrsta úrslitaleikinn við Pick Szeged um ungverska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld, 38:36. Leikurinn fór fram í Veszprém og var heimaliðið yfir í hálfleik, 19:17. Næst mætast liðin í Pick Arena í Szeged á þriðjudaginn. Bjarki...

Einar Bragi er sænskur meistari

Einar Bragi Aðalsteinsson varð í kvöld sænskur meistari í handknattleik með liði sínu, IFK Kristianstad. Hann skoraði 10 mörk í þriggja marka sigri IFK Kristianstad á Malmö, 41:38, í fjórða úrslitaleik liðanna um meistaratitilinn. IFK vann þrjár viðureignir en...

Arnór: Verðum að muna að vera stoltir

Arnór Atlason, þjálfari TTH Holstebro og aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, viðurkennir að vera svekktur að Holstebro hafi ekki tekist ætlunarverk sitt um að komast í undanúrslit úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn. Holstebro hafnaði í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir frábært gengi í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -