- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Emelía Ósk verður áfram á Selfossi

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, sem gekk til liðs við Selfoss í upphafi nýliðinnar leiktíðar, hefur ákveðið að framlengja vist sína í bænum. Þar af leiðandi hefur hefur hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Selfoss. Emelía Ósk er átján ára gömul...

Stjarnan hefur samið við danskan markvörð

Danskur markvörður, Sara Schrøder Winde, hefur samið um að verja mark kvennaliðs Stjörnunnar á næsta keppnistímabili og því næsta á eftir. Wine er fædd árið 2005. Hún er uppalin hjá Team Esbjerg en kemur til Stjörnunnar eftir dvöl hjá sænska...

Fer Færeyingurinn í Íslendingaliðið?

Færeyingurinn Óli Mittún, einn eftirsóttasti handboltamaður heims, er orðaður við nýkrýnda Þýskalandsmeistara SC Magdeburg, sem þrír Íslendingar leika með. Fjöldi félaga hefur áhuga á að krækja í hinni tvítuga Óla, sem er að ljúka sínu fyrsta tímabili með GOG í...
- Auglýsing -

Framtíð Alfreðs komin á hreint – framlengir til 2028

Þýska handknattleikssambandið hefur ákveðið að kveða niður kjaftasögur í kringum framtíð Alfreðs Gíslasonar sem þjálfara karlalandsliðsins og semja við hann að nýju. Alfreð hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028. Fyrri samningur...

Enn slær Gidsel eigið met

Mathias Gidsel, besti handknattleiksmaður heims undanfarin þrjú ár samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu, hefur lagt það í vana sinn að slá markamet og oft sín eigin. Það gerði Gidsel í gærkvöldi þegar hann skoraði sitt 278. mark fyrir Füchse Berlín í þýsku 1....

Egill Oddgeir yfirgefur herbúðir ÍBV

Egill Oddgeir Stefánsson, leikmaður ÍBV, er á förum frá uppeldisfélagi sínu í sumar. Flytur hann frá Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðið til þess að hefja nám næsta haust. Egill Oddgeir er 19 ára örvhent skytta sem lék 16 leiki í Olísdeildinni...
- Auglýsing -

Molakaffi: Fisker, Kristinn, Solberg, Green

Danska handknattleikskonan Maria Fisker Stokholm hefur gengið til liðs við Eiðis Bóltafelag í Færeyjum. Stokholm verður leikmaður liðsins og einnig þjálfari. Hún er þrautreynd handknattleikskona og hefur m.a. leikið með danska landsliðinu auk Viborg HK, Randers HK og CSM...

Þóra María verður áfram hjá Gróttu

Þóra María Sigurjónsdóttir hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Þóra María hefur leikið lykilhlutverk fyrir Gróttuliðið undanfarin ár og skoraði til að mynda 66 mörk fyrir Gróttu í vetur auk þess að vera hörkuvarnarmaður. Fram...

Góður heimasigur hjá Elmari

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen lyftu sér upp í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í kvöld eftir tveggja marka sigur á TV 05/07 Hüttenberg á heimavelli, 35:33. Hüttenberg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20:18. Elmar skoraði...
- Auglýsing -

Myndskeið: Íslendingatríóið er þýskur meistari

SC Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handknattleik í fjórða sinn. Liðið tryggði sér meistaratitilinn með eins marks sigri á Flensburg, 31:30, í GETEC Arena í Magdeburg í kvöld. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með liðinu; Elvar Örn Jónsson,...

Elín Klara og félagar geta tryggt sér meistaratitilinn á sunnudaginn

Sænski meistaratitillinn blasir við Elínu Klöru Þorkelsdóttur og liðsfélögum í IK Sävehof eftir annan sigur á Skara HF, 30: 27, í úrslitum um meistaratitilinn. Leikið var í Skara. IK Sävehof getur tryggt sér meistaratitilinn á heimavelli í þriðju viðureigninni...

Jokanovic heldur áfram að verja mark ÍBV

Markvörðurinn öflugi, Petar Jokanovic, verður áfram í herbúðum ÍBV. Félagið tilkynnti í dag að hann hafi skrifað undir nýjan samning sem gildir til næstu tveggja ára. Jokanovic gekk til liðs við ÍBV árið 2019 og er að verða einn...
- Auglýsing -

Veit ekki hvort hann myndi taka sömu ákvörðun í dag

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og leikmaður SG Flensburg-Handewitt, gengur til liðs við MT Melsungen í sumar. Samdi Golla við félagið í desember 2024 en kveðst ekki viss hvort hann myndi taka sömu ákvörðun í dag. Golla hóf meistaraflokksferilinn árið...

Stig dregin af Íslendingaliði Kolstad

Karlalið Kolstad mun hefja keppni í norsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili með tvö mínus stig. Norska handknattleikssambandið tilkynnti um ákvörðun sína í dag. Ástæðan fyrir refsingunni er sú að Kolstad hefur brotið gegn skilmálum keppnisleyfis síns í norsku úrvalsdeildinni. Skyldi...

Íslendingarnir geta orðið Þýskalandsmeistarar í kvöld

Íslendingalið SC Magdeburg getur í kvöld tryggt sér þýska meistaratitilinn þegar það fær SG Flensburg-Handewitt í heimsókn í toppslag 1. deildarinnar. Sigur eða jafntefli nægir Magdeburg til þess að tryggja titilinn. Fyrir leikinn í kvöld, sem er frestaður leikur úr 30....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -