Landsliðin

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Miðasala á leikinn við Austurríki er hafin

Klukkan 12 á hádegi í dag hófst miðasala á landsleik Íslands og Austurríki í undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fer á Ásvöllum í Hafnarfirði laugardaginn 16. apríl klukkan 16. Miðasala fer eingöngu fram á Tix.is - smellið hér....

Dregið verður í riðla í undankeppni EM 2024 í Berlín í dag

Í dag verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla sem fram fer í Þýskalandi frá 10. til 28. janúar. Dregið verður í átta fjögurra liða riðla við hátíðlega athöfn í Berlín. Athöfnin hefst klukkan 16....

Miðasala á HM-leikinn við Austurríki hefst á fimmtudaginn

Gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir viðureignum Íslands og Austurríkis í undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fara 13. og 16. apríl. Miðasala fyrir síðari leikinn sem fram fer á Ásvöllum í Hafnarfirði 16. apríl hefst á næsta fimmtudag kl....
- Auglýsing -

Hakan féll ekki niður í gólf

„Hakan féll ekki niður í gólf við tíðindin. Þótt ég hafi vona það besta þá var ég búinn undir það versta,“ sagði Þráinn Orri Jónsson, leikmaður Hauka í samtali við handbolta.is fyrir hádegið. Þráinn Orri leikur ekki handknattleik á...

Axnér hefur valið Íslandsfarana

Tomas Axnér, landsliðsþjálfari Svía í handknattleik kvenna, valdi í morgun 17 leikmenn til að tefla fram gegn Íslendingum og Tyrkjum í síðustu tveimur leikjum sænska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna 20. og 23. apríl. Leikurinn 20. apríl...

Skipað er í helming sæta á HM 2023

Bókað hefur verið í helming þátttökusæta á heimsmeistaramóti karla sem fram fer í Póllandi og í Svíþjóð í janúar á næsta ári. Eftir standa átta sæti Evrópu en að kvöldi 17. apríl liggur fyrir hvaða þjóðir hreppa sætin. Til viðbótar...
- Auglýsing -

Ísland er í efsta styrkleikaflokki

Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í fyrsta styrkleikaflokki af fjórum þegar dregið verður í átta fjögurra liða riðla í fyrir undankeppni Evrópumótsins í Berlín fimmtudaginn 31. mars. Handknattleikssamband Evrópu gaf út styrkleikaflokkana fjóra í dag. Evrópumótið verður í...

Leiktímar í Bregenz og á Ásvöllum liggja fyrir

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest leiktímana á viðureignum Íslands og Austurríkis í umspili um sæti á heimsmeistaramóti karla í handknattleik í næsta mánuði. Fyrri viðureignin verður í Bregenz miðvikudaginn 13. apríl. Flautað verður til leiks klukkan 18 að staðartíma....

Austurríki verður andstæðingur Íslands í HM-umspilinu

Íslenska landsliðið mætir austurríska landsliðinu í tveimur umspilsleikjum í næsta mánuði þar sem í húfi verður þátttökuréttur á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer í janúar á næsta ári. Austurríki lagði Eistland, 27:24, í Tallin í kvöld og...
- Auglýsing -

Dönsku piltarnir svöruðu fyrir sig

Landslið Danmerkur, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, svaraði í dag fyrir tapið fyrir íslenska landsliðinu í gærkvöld þegar liðin mættust á Ásvöllum. Danir voru mikið beittari í síðari hálfleik í dag og skoruðu 18 mörk og alls 32...

Streymi: Ísland – Danmörk, U20 ára lið karla, kl. 16

Landslið Íslands og Danmerkur í karlaflokki, skipuð leikmönnum 20 ára og yngri mætast öðru sinni í vináttulandsleik í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16. Íslenska liðið vann fyrri viðureignina, sem fram fór á Ásvöllum í gær, 28:22, eftir að...

Dagskráin: Vinnur ÍBV sjöunda leikinn í röð?

Nýkrýndir bikarmeistarar Vals taka á móti ÍBV í Olísdeild kvenna, 17. umferð, klukkan 14 í dag. Lið félaganna mættust síðast í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins fyrir rúmri viku og þá hafði Valur betur, 28:20. ÍBV lagði Íslandsmeistara KA/Þórs á fimmtudagskvöld,...
- Auglýsing -

Andri Már og Guðmundur Bragi léku Dani grátt

Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann danska landsliðið í sama aldursflokki með sex marka mun, 28:22, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna á Ásvöllum í kvöld. Íslensku piltarnir voru með sjö marka forskot að loknum...

Streymi: Ísland – Danmörk, U20 ára lið karla

Landslið Íslands og Danmerkur í karlaflokki, skipuð leikmönnum 20 ára og yngri mætast í vináttulandsleik í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 20. Um er að ræða fyrri vináttuleikinn að þessu sinni en sá síðari verður á morgun, laugardag,...

Leikur hugsanlega ekki meira á leiktíðinni

Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður pólska meistaraliðsins Łomża Vive Kielce hefur ekkert leikið með félagsliði sínu eftir Evrópumeistaramótið í handknattleik. Hásinarmeiðsli sem hafa plagað Sigvalda Björn meira og minna alla leiktíðin versnuðu til muna við álagið...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -