U19 ára landslið kvenna í handknattleik hélt af landi brott í morgun áleiðis til Skopje í Norður-Makedóníu þar sem fyrir dyrum stendur að taka þátt í B-deild Evrópumótsins í handknattleik. Flautað verður til leiks á laugardaginn og verður landslið...
Heimir Ríkarðsson og Gunnar Andrésson hafa valið þá 16 leikmenn sem á að tefla fram fyrir Íslands hönd á Evrópumóti landsliða, skipað leikmönnum 19 ára og yngri sem fram fer í Króatíu 12. – 22. ágúst.
Mótið fer fram í...
Díana Guðjónsdóttir, Magnús Stefánsson og Guðmundur Helgi Pálsson hafa valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í B-deild Evrópumóts 19 ára liða í Norður Makedóníu 10. – 18. júlí.
Leikirnir fara fram í Skopje og verður íslenska liðið í A-riðli...
Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson hafa valið 16 leikmenn sem leika fyrir Íslands hönd í B-deild Evrópumóts U17 ára landsliða kvenna í handknattleik í Litháen 7. – 15. ágúst nk.
Liðið hefur æfingar mánudaginn 26. júlí og...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest að Evrópumót yngri landsliða fari fram í sumar. Framkvæmdastjórn EHF lagði blessun sína yfir mótahaldið á fundi sínum á föstudaginn. Óvissa skapaðist í þessu efnum eftir að Alþjóða handknattleikssambandið tilkynnti á dögunum að ekkert...
Helgina 19. – 21. mars koma U19, U17 og U15 ára landslið kvenna saman til æfinga á höfuðborgarsvæðinu. Þjálfarar liðanna hafa valið sína æfingahópa. Æfingatímar verða auglýstir á næstu dögum, segir á heimasíðu HSÍ.
Landsliðshópana má sjá hér fyrir...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið Evrópumeistaramót karla, skipað leikmönnum 19 ára og yngri sem fram átti að fara á síðasta sumri, verði haldið í ágúst á þessu ári. EHF tilkynnti þetta í framhaldi af ákvörðun Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, að...
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, hefur ákveðið að aflýsa öllum mótum yngri landsliða á árinu. Þetta var tilkynnt á heimasíðu IHF en ástæða þessa er kórónuveirufaraldurinn og sú óvissa sem ríkir um þróun hans á næstu mánuðum, sem bæði setur strik...
Dregið var í gær í riðla í úrslitakeppni B-deildar Evrópumóts U-17 og U-19 ára landsliða kvenna sem fram fara í sumar. Bæði landslið Íslands voru í efsta styrkleikaflokki.U-17 ára landslið kvenna leikur sína leiki í riðli sem fram...
Þjálfarar yngri landsliða HSÍ hafa valið stóra hópa vegna verkefna næsta sumars, um er að ræða U-21, U-19 og U-17 ára landslið karla og U-19 og U-17 ára landslið kvenna.
Á næstu dögum funda þjálfarar liðanna með leikmönnum og fara...
Hið árlega SparkassenCup mót unglingaliða karla hefur verið aflýst að þessu sinni en til stóð að halda það á milli jóla og nýárs, eins og verið hefur árlega frá 1987. Útilokað er að halda mótið vegna ástands sem ríkir...
Evrópumót U18 og U20 ára landsliða í handknattleik karla hafa verið slegin út af borðinu en landslið Íslands í þessum aldursflokkum höfðu áunnið sér þátttökurétt. Upphaflega stóð til að mótin færu fram í sumar sem leið en var frestað...
Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið vegna nýrrar bylgju kórónuveirufaraldursins hér á landi að fresta æfingabúðum kvennalandsliðsins og yngri landsliða sem fram áttu að fara um og upp úr komandi mánaðarmótum.
Eins verður frestað fjölliðamótum í 5., 6. og 7. flokki...
Fullkomin óvissa ríkir hvort lokakeppni EM 18 og 20 ára landsliða karla fari fram í janúar en landslið Íslands í þessum aldursflokkum hafa fyrir nokkru tryggt sér þátttökurétt.
Til stóð á mótin færu fram í sumar. Yngri liðin áttu að...