Olís kvenna

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stjarnan byrjaði af krafti

Stjarnan vann Íslandsmeistara Fram í upphafsleik Olísdeildar kvenna í handknattleik í TM-höllinni í kvöld, 26:20, eftir að hafa einnig verið með sex marka forskot eftir fyrri hálfleik, 13:7. Sigur kemur e.t.v. á óvart í ljósi þess að Fram tók Stjörnuna...

Leikjavakt: Fjórar viðureignir í tveimur deildum

Fjórir leikir fara fram í Olísdeildum kvenna og karla í kvöld. Olísdeild kvenna:TM-höllin: Stjarnan - Fram kl. 18. Olísdeild karla:Skógarsel: ÍR - Haukar, kl. 19.30.Sethöllin: Selfoss - Grótta, kl. 19.30.TM-höllin: Stjarnan - Fram, kl 20. Handbolti.is hyggst fylgjast með á leikjavakt...

Molakaffi: Hulda Dís, Róbert, Ásgeir Snær, Aðalsteinn, Schmid

Hulda Dís Þrastardóttir, sem gekk til liðs við uppeldisfélag sitt Selfoss í sumar frá Val, varð fyrir því óláni að slíta krossband eftir að hafa æft með Selfossliðinu í fáeinar vikur í sumar. Af því leiðir að hún leikur...
- Auglýsing -

Skrifaði undir tveggja ára samning á Selfossi

Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við handknattleiksdeild Selfoss. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þrátt fyrir ungan aldur er Elínborg Katla að hefja sinn fjórða vetur í meistaraflokki. Á þeim tíma hefur hún unnið...

Spá handbolta.is í Olísdeild kvenna og helstu breytingar

Keppni hefst annað kvöld í Olísdeild kvenna í handknattleik með viðureign Stjörnunnar og Fram í TM-höllinni í Garðabæ. Einn leikur verður á föstudag og tveir á laugardaginn þegar 1. umferð lýkur. Leikir 1. umferðar Olísdeildar kvenna Fimmtudagur 15. september: TM-höllin: Stjarnan -...

Molakaffi: Ásdís Þóra, Hannes Jón, Polman, Siewert, lagt af stað í Svíþjóð

Handknattleikskonan Ásdís Þóra Ágústsdóttir hefur verið með á æfingum Selfossliðsins síðustu daga. Svo kann að fara að hún leiki með Selfoss í Olísdeildinni. Það skýrist væntanlega fyrir lok vikunnar eftir því sem handbolti.is hefur hlerað. Ásdís Þóra flutti heim...
- Auglýsing -

Jöfn og spennandi keppni með yngri leikmönnum í stærri hlutverkum

„Ég held að deildin verði jöfn og spennandi eins og undanfarin ár. Það er mikið af ungum og efnilegum leikmönnum að koma fram hjá liðunum. Ég reikna þar af leiðandi með að fleiri yngri leikmenn eigi eftir að fá...

Reynum alltaf að vinna þegar bikar er í boði

„Fyrst og fremst stendur upp úr er að hafa unnið leikinn. Það er alltaf gaman að vinna bikar þótt þetta sé kannski ekki sá sem við stefnum fyrst og fremst á. Þegar bikar er í boði þá reynir maður...

Valur er meistari í meistaranna

Valur vann Fram í meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki í dag, 23:19. Leikið var í nýju og stórglæsilegu íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal en því miður fyrir félagið þá tókst liði þess ekki að vinna fyrsta bikarinn sem afhentur var í...
- Auglýsing -

Valur veltir Fram úr sessi

Valur mun velta Fram úr sessi og verða Íslandsmeistari kvenna í handknattleik á næsta vori, gangi spá þjálfara og fyrirliða liðanna í Olísdeild kvenna eftir. Mjótt verður á mununum en fleiri telja að Valur, undir stjórn Ágústs Þórs Jóhannssonar,...

Steinunn besti leikmaður Ragnarsmótsins

Landsliðskonan og leikmaður Fram, Steinunn Björnsdóttir, var valin besti leikmaður Ragnarsmótsins í handknattleik sem lauk á Selfossi í gær. Eins og kom fram á handbolta.is í gær þá unnu Steinunn og samherjar öruggan sigur í öllum þremur leikjum mótsins...

Fram vann alla á Ragnarsmótinu

Fram vann stórsigur á Selfossi í síðasta leik Ragnarsmóts kvenna í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í dag, 37:22, og vann þar með mótið. Fram hafði betur í öllum þremur leikjum sínum í mótinu þrátt fyrir að vera ekki...
- Auglýsing -

Sjö marka sigur ÍBV í Sethöllinni

ÍBV vann Stjörnuna í uppgjöri um þriðja sætið á Ragnarsmóti kvenna í handknatteik í Sethöllinni á Selfossi í dag, 26:19. ÍBV var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 10:9. Stjarnan skoraði þrjú fyrstu mörkin í leiknum. Eyjaliðið svaraði með fjórum...

Þórhildur tryggði annað stigið

Þórhildur Gunnarsdóttir tryggði Stjörnunni jafntefli gegn Selfossi í síðari leik kvöldsins á Ragnarsmótinu í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi. Þórhildur jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka, 22:22. Heimaliðið átti síðustu sóknina en tókst ekki að færa sér hana...

Steinunn skoraði þriðjung markanna

Steinunn Björnsdóttir skoraði þriðjung marka Framliðsins sem vann ÍBV, 30:27, í fyrri leik annarrar umferðar Ragnarsmótsins í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Fram hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu og mætir Selfossi á laugardaginn í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -