- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Eyjamenn og FH-ingar með sigra

Topplið FH vann nokkuð sannfærandi sigur á KA, 27-34, á Akureyri í öðrum leik kvöldsins í 11. umferð Olís-deildar karla. KA situr þannig áfram í sjöunda sæti deildarinnar með 10 stig en Hafnfirðingar styrkja stöðu sína á toppnum...

Dagskráin: Efsta liðið kemur í KA-heimilið – HK mætir til leiks í Eyjum

Ellefta umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með tveimur leikjum. Þeir hefjast báðir klukkan 18.30. Annarsvegar sækir efsta lið deildarinnar, FH, liðsmenn KA heim í KA-heimilið og hinsvegar fá Íslandsmeistarar ÍBV heimsókn frá leikmönnum HK. Umferðin heldur...

Toppliðin tvö mætast í átta liða úrslitum

Tvö efstu lið Olísdeildar kvenna, Haukar og Valur, mætast í átta liða úrslitum Poweradebikarkeppni kvenna í handknattleik þegar leikið verður í fyrri hluta febrúar. Valur verður á heimavelli. Liðin eru sem stendur efst og jöfn í Olísdeildinni með 18...
- Auglýsing -

Hafnarfjarðarslagur í 8-liða úrslitum – Eyjaferð bíður bikarmeistaranna

Framundan er Hafnarfjarðarslagur í átta liða úrslitum Poweradebikarkeppni karla í handknattleik. Haukar og FH drógust saman og mætast á Ásvöllum annað hvort sunnudaginn 11. febrúar eða daginn eftir þegar leikir átta liða úrslita fara fram. Bikarmeistarar Aftureldingar fara til Vestmannaeyja...

Myndskeið – samantekt: Selfoss – Haukar

Selfoss lagði Hauka, 30:28, í Olísdeild karla í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í gærkvöld. Þetta var annnar sigur Selfyssinga í Olísdeildinni á leiktíðinni og um leið fjórði tapleikur Hauka í röð. Haukar voru fimm mörkum yfir í hálfleik,...

Sigursteinn þjálfari FH: Búum okkur undir hörkuleik í Kaplakrika

„Við erum bara að búa okkur undir hörkuleiki við belgíska liðið. Markmið okkar er byrja á afgerandi hátt á heimavelli á laugardaginn,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari karlaliðs FH sem mætir Sezoens Achilles Bocholt frá Belgíu í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar...
- Auglýsing -

Handboltapassinn – íslenski handboltinn

Fréttatilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands. HANDBOLTAPASSINN - ÍSLENSKI HANDBOLTINN Allar íslensku deildirnar í handbolta, karla og kvenna, á einum stað. Í fyrsta skipti verða allir leikir í Olís og Grill 66 deildum karla og kvenna í beinni útsendingu. Auk þess verður Handboltapassinn með...

Þetta er bara drullu pirrandi

„Þetta er bara drullu pirrandi,“ sagði Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir tap fyrir HK, 28:27, í 10. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Kórnum í kvöld. Með þessum úrslitum er Stjarnan næst neðst í deildinni, aðeins stigi fyrir ofan...

10. umferð – samantekt – úrslit, markaskor, staðan

Tíunda umferð í Olísdeild karla hófst á þriðjudagskvöld og var framhaldið á miðvikudag og lauk í kvöld fimmtudag. Leikjunum hafa verið gerð skil á handbolti.is með neðantöldum greinum: Með svona spilamennsku getum við tekið óvænt stig Myndskeið: „Við vorum ógeðslega flottir“ Hrikalega...
- Auglýsing -

Held að strákarnir séu að reyna að ganga frá mér

„Ég held að strákarnir séu að reyna að ganga frá mér,“ sagði Sebastian Alexandersson þjálfari HK með sigurbros á vör þegar handbolti.is hitti hann eftir sigur á Stjörnunni, 28:27, í hörkuleik í Olísdeildinni í handknattleik karla í kvöld. Vísaði...

Aukin spenna hlaupin í botnbaráttuna – HK og Selfoss unnu sína leiki

Enn meiri spenna hljóp í neðri hluta Olísdeildar karla í kvöld þegar tveir síðustu leikir 10. umferðar fóru fram. Neðsta lið deildarinnar, Selfoss, gerði sér lítið fyrir og lagði Hauka í Sethöllinni á Selfossi, 30:28. Þetta var fjórði tapleikur...

Unglingalandsliðsmaður heldur áfram hjá Gróttu

Unglingalandsliðsmaðurinn Antoine Óskar Pantano hefur fylgt í kjölfarið á Ara Pétri Eiríkssyni og skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Gróttu sem gildir út tímabilið 2026. Antoine er 17 ára gamall leikstjórnandi og hefur stimplað sig inn í Olísdeildina í...
- Auglýsing -

Dagskráin: Botnslagur í Kórnum og fleiri leikir

Tveir síðustu leikir 10. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Leikið verður í Kórnum í Kópavogi og í Sethöllinni á Selfossi þangað sem Haukar koma í heimsókn til neðsta liðs deildarinnar. Liðin sem sitja í 10. og...

Molakaffi: Róbert, Viktor, Bürkle, Símon, Arnór

Róbert Sigurðarson var fastur fyrir í vörn Drammen í gær þegar liðið vann Viking TIF, 35:33, í 12. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla en leikið var á heimavelli Viking.  Drammen var fjórum mörkum undir að loknum fyrri hálfleik,...

Tilfinningin var góð allan leikinn

„Við mættum grimmir í leikinn og lékum góða vörn. Fyrir vikið voru Gróttumenn í erfiðleikum með að skora meðan við fengum færi í flestum okkar sóknum. Tilfinningin var góð alla leikinn,“ sagði Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH í samtali við...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -