- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagskráin: Spenna á Hlíðarenda og í Vestmannaeyjum

- Auglýsing -

Þriðja umferð undanúrslita Olísdeildar kvenna fer fram í kvöld. Í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og Haukar og hefja leik klukkan 18.30. Einni stundu síðar hefja Valur og Fram viðureign sína í N1-höllinni á Hlíðarenda. Liðin sem fyrr vinna þrjá leiki í hvorri rimmu leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

Mikil spenna er í rimmu ÍBV og Hauka þar sem hvort lið hefur einn vinning. Haukar unnu viðureignina í Vestmannaeyjum fyrir viku með þriggja marka mun, 29:26. ÍBV svaraði fyrir sig með því að fara með sigur af hólmi á Ásvöllum á laugardaginn, 29:28. ÍBV skoraði fjögur síðustu mörk leiksins.


Valur vann tvo fyrstu leikina við Fram í undanúrslitum. Ef liðið bætir við þriðja sigrinum á heimavelli í kvöld er björninn unninn sem þýðir að Valur leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn eins og lið félagsins hefur gert á hverju ári frá 2018 að vorinu 2020 undanskildu þegar úrslitakeppnin féll niður.

Leikir kvöldsins:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar (1:1) kl. 18.30.
N1-höllin: Valur – Fram (2:0) kl. 19.30.

Báðir leikir verða sendir út á Handboltapassanum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -