- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagur Árni kominn í KA á nýjan leik

- Auglýsing -

Dagur Árni Heimisson hefur snúið aftur heim í KA að lokinni eins árs veru hjá Val. Frá þessu greinir KA í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Það voru stórtíðindi fyrir ári þegar Valur keypti Dag Árna frá KA. Hann náði sér hins vegar aldrei verulega á strik með Valsliðinu, m.a. vegna meiðsla sem komu í veg fyrir þátttöku Dags Árna með Valsliðinu síðustu vikur og mánuði tímabilsins. Alls voru leikirnir 15 með Val í Olísdeildinni og mörkin 52.

Dagur Árni, sem stendur á tvítugu, hafði gert garðinn frægan með KA áður en hann hleypti heimdraganum og fór suður. Hann var lykilmaður KA-liðsins auk þess að leika veigamikil hlutverk hjá yngri landsliðunum, síðast á HM 19 ára landsliða í Egyptalandi sl. sumar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -