- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elvar Örn er sagður á leið til Rhein-Neckar Löwen

- Auglýsing -

Elvar Örn Jónsson er sagður ganga til liðs við Rhein-Neckar Löwen í sumar og yfirgefa þar með þýska meistaraliðið SC Magdeburg eftir aðeins eins árs veru. Frá þessu segir SportBild í dag. Magdeburg hefur þegar brugðist við brottför Elvars Arnar með því að krækja í franska landsliðsmanninn Thibaud Briet.


Gangi vistaskipti Elvars Arnar eftir verður hann samherji frænda síns Hauks Þrastarsonar á nýjan leik en þeir voru samherjar í Íslandsmeistaraliði Selfoss fyrir sjö árum.

Ekki er ljóst af hverju Elvar Örn vill yfirgefa SC Magdeburg en því hefur verið fleygt að hann sé óánægður með lítið hlutverk sitt sem sóknarmaður hjá félaginu.

Mánuður er síðan orðrómur fór fyrst af stað um að Elvar Örn væri undir smásjá Rhein-Neckar Löwen.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -