- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fer Blær til Danmerkur?

- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Blær Hinriksson er einn þeirra leikmanna þýska liðsins Leipzig sem leiddar eru líkur til að yfirgefi liðið falli það úr efstu deild. Ekki blæs byrlega hjá Leipzig-liðinu sem rekur lestina þegar tvær umferðir eru eftir. Danska handboltasíðan Europamester segir hugsanlegt að Blær færi sig norður fyrir landamæri Þýskalands í sumar og gangi til liðs við Bjerringbro/Silkborg á Jótlandi Danmerkur.


Vísað er m.a. í fréttasíðuna RT Handball, sem sérhæfir sig í staðfestum og óstaðfestum fréttaflutningi á Instagram, slái því upp að Blær sé undir smásjá danskra og þýskra félagsliða.

Europamester segir að Nikolaj Læsø verði ekki áfram í herbúðum Bjerringbro/Silkeborg og að Blær sé tilvalinn kostur í stað Læsø.

Blær gekk til liðs við Leipzig frá Aftureldingu síðasta sumar í kjölfar töluverðrar uppstokkunar innan þýska liðsins. M.a. urðu þjálfaraskipti og leikmenn hurfu á braut og aðrir komu í staðinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -