Haukar og ÍBV mætast í fjórða sinn í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum klukkan 15. ÍBV er í vænlegri stöðu um þessar mundir með tvo vinninga en Haukar einn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að skora Valsliðið á hólm í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Valur hefur þegar lokið undanúrslitarimmu sinni við Fram.
Viðureignir Hauka og ÍBV hafa verið einstaklega skemmtilegar og spennandi til þessa enda afar jafnar. Vart hefur mátt á milli sjá liðanna.
Haukar unnu fyrsta leikinn sem fram fór í Vestmannaeyjum, 29:26, eftir að hafa verið öflugri á endasprettinum.
ÍBV skoraði fjögur síðustu mörkin í annarri viðureign liðanna fyrir viku í Kuehne+Nagel höllinni og vann með eins marks mun, 29:28.
Grípa varð til tveggja framlenginga til þess að knýja fram sigur á annan hvorn veginn í þriðju viðureign liðanna í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn. Í háspennuleik hafði ÍBV betur, 38:37.
Þeir sem ómögulegt geta komist í Kuehne+Nagel höllina í dag geta fylgst með leiknum í útsendingu Handboltapassans og ellegar í opinni dagskrá Símans.



