Einn leikmaður HC Vardar-liðsins sem mætir Val í Evrópudeildinni í handknattleik, Tomislav Jagurinovski, lék með Þór Akureyri í Grill 66-deildinni leiktíðina 2021/2022. Jagurinovski, sem er örvhentur, gekk til liðs við Þór í október 2021 meðan landi hans Stevche Alushovski þjálfaði Þórsliðið.
Í 15 leikjum í Grill 66-deildinni skoraði Jagurinovski 83 mörk. Hann fór í eins leiks keppnisbann eftir kappleik Þórs og Harðar í desember 2021 eftir hafa lesið dómurum leiksins, feðgunum Bóasi Berki Bóassyni og Bjarka Bóassyni, pistilinn.
Þór vann leikinn sem fram fór í Höllinni á Akureyri. Jagurinovski skoraði 12 mörk áður en honum rann í skap.
Jagurinovski kvaddi Akureyri sumarið 2022 og flutti á ný til Norður Makedóníu. Hann var ekki í leikmannahópi Vardar í fyrri viðureign Vals og HC Vardar í Skopje í síðasta mánuði.
Leikur Vals og HC Vardar hefst klukkan 19.45 í kvöld á Hlíðarenda, heimavelli Vals.