- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Komnir með bakið upp við vegg

- Auglýsing -

Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Kadetten Schaffhausen eru komnir með bakið upp á vegg í baráttunni um meistaratitilinn í Sviss. Í kvöld töpuðu þeir öðru sinni fyrir HC Kriens-Luzern í úrslitum. Að þessu sinni var munurinn á liðunum fimm mörk þegar upp var staðið, 41:36. Jafnt var í hálfleik, 20:20.


Óðinn Þór skoraði átta mörk, þar af þrjú úr vítaköstum. Hann missti ekki marks í einu einasta skoti í leiknum.

Næsta viðureign fer fram á heimavelli Kadetten í Schaffhausen á laugardag. Þá verður Kadetten að vinna til þess að eiga einhvern möguleika á að vinna meistaratitilinn fimmta árið í röð.

Óðinn Þór markahæstur – tap í fyrsta úrslitaleiknum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -