Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, bar af þegar kom að markaskorun í Olísdeildinni á tímabilinu og endaði sem markadrottning. Keppni lauk í deildinni um helgina og var landsliðskonan langsamlega markahæst með 207 mörk í 21 leik, eða rétt tæplega tíu mörk að meðaltali í leik.
Sara Dögg var markahæst stærstan hluta tímabilsins en landsliðsfyrirliðinn Sandra Erlingsdóttir hjá ÍBV var næstmarkahæst með 154 mörk í 20 leikjum. Sara Dögg skoraði því 53 mörkum meira en Sandra.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir úr Haukum endaði þá þriðja markahæst með 148 mörk.
Valur og ÍBV sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn en þar mæta Haukar liði KA/Þór og ÍR mætir Fram. Fyrsta umferðin hefst laugardaginn 28. mars.
Hér fyrir neðan er að finna 25 markahæstu leikmenn Olísdeildar kvenna tímabilið 2025/2026:
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR, 207/84.
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV, 154/50.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Haukum, 148/42.
Natasja Hammer, Stjörnunni, 134/0.
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV, 128/0.
Lovísa Thompson, Val, 115/0.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum, 110/2.
Susanne Denise Pettersen, KA/Þór, 97/2.
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram, 96/0.
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni, 95/29.
Tinna Valgerður Gísladóttir, KA/Þór, 94/57.
Mia Kristin Syverud, Selfoss, 92/24.
Hulda Dís Þrastardóttir, Selfoss, 91/55.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val, 90/42.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram, 88/0.
Hulda Dagsdóttir, Fram, 84/32.
Trude Blestrud Hakonsen, KA/Þór, 83/0.
Vaka Líf Kristinsdóttir, ÍR, 81/3.
Ásdís Guðmundsdóttir, Fram, 78/18.
Alexandra Ósk Viktorsdóttir, ÍBV, 77/0.
Embla Steindórsdóttir, Haukum, 73/12.
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR, 71/1.
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir, Val, 68/0.
Inga Maria Roysdottir, Stjörnunni, 67/0.
Sara Katrín Gunnarsdóttir, Stjörnunni, 65/14.
Einn leikur er eftir í deildinni. Valur og ÍBV eiga að mætast á laugardaginn.
Heimild: HBStatz.



