Lokahóf meistaraflokksliða Vals var haldið fyrr í þessum mánuði þar var góðum vetri fagnað. Kvennalið Vals varð Íslandsmeistari og hafnaði í öðru sæti í deild og bikar. Karlaliðið varð deildarmeistari í Olísdeildinni og náði alla leið í 16-liða úrslit í Evrópdeildinni reynslunni ríkara.
Á lokahófinu voru verðlaun veitt fyrir fjölda leikja, þjálfarar völdu þá sem stóðu upp úr á liðnu tímabili. Einnig voru sjálfboðaliðum veittar viðurkenningar en líklega hafa aldrei fleiri komið að starfi deildarinnar en á nýliðinni leiktíð.
Viðurkenningar hlutu
Fyrir 100 leiki:
Elín Rósa Magnúsdóttir, Benedikt Gunnar Óskarsson og Tjörvi Týr Gíslason.
Fyrir 150 leiki:
Auður Ester Gestsdóttir, Arnór Snær Óskarsson, Magnús Óli Magnússon og Stiven Tobar Valencia.
Fyrir 200 leiki:
Hildigunnur Einarsdóttir.
Fyrir 250 leiki:
Finnur Ingi Stefánsson.
Fyrir 350 leiki:
Alexander Örn Júlíusson og Vignir Stefánsson.
Besti leikmaður í U-liðs kvenna:
Brynja Katrín Benediktsdóttir.
Besti leikmaður U-lið karla:
Breki Hrafn Valdimarsson.
Efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Karlotta Óskarsdóttir.
Efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla:
Tryggvi Garðar Jónssson.
Mikilvægasti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Mariam Eradze.
Mikilvægasti leikmaður meistaraflokks karla:
Benedikt Gunnar Óskarsson.
Besti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Þórey Anna Ásgeirsdóttir.
Besti leikmaður meistaraflokks karla:
Stiven Tobar Valencia.
Fleiri myndir frá lokahófinu er að finna á Facebook-síðu Vals handbolta.
Fleiri lokahóf félaga síðustu daga:
Lokahóf Aftureldingar: Punktur settur aftan við tímabilið
Lokahóf Hauka: Elín og Guðmundur best – tíu voru kvaddir
Lokahóf ÍBV: Hanna og Rúnar stóðu upp úr – myndir
Lokahóf Fram: Perla Ruth og Gauti best – myndir
Lokahóf Fjölnis: Guðrún Erla og Björgvin Páll mikilvægust – myndir
Hildur og Birgir Örn best hjá FH – myndir
Lokahóf á Selfossi: Katla María og Einar best – myndir
Viðurkenningar voru veittar á lokahófi Gróttu
Lokahóf Víkings – myndir – Ída og Jóhann valin best
Elín Klara og Rúnar valin þau bestu