„Við erum ekki komin með öll litlu atriðin eins og Valur. Um þau munar þegar komið er út í úrslitaleiki gegn landsliðinu. Valur er með sjö landsliðskonur en við erum með eina,“ sagði Díana Guðjónsdóttir annar þjálfara Hauka í samtali við handbolta.is eftir að lið hennar hafði tekið við silfurverðlaunum á Íslandsmótinu í kvöld eftir tap fyrir Val í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn. Silfur er besti árangur Hauka um langt árabil á Íslandsmóti kvenna og skref fram á við frá síðasta ári þegar liðið féll naumlega úr leik í undanúrslitum fyrir ÍBV.
Vonsvikin yfir fyrsta leiknum
„Við vissum að þetta yrði erfitt fyrir okkur gegn Val í úrslitum. Okkur tókst að leika tvo góða leiki en einn leikurinn var slakur af okkar hálfu, önnur viðureignin,“ sagði Díana og bætti við að vonbrigðin hafi verið með fyrsta leikinn, í honum átti liðið besta tækifærið sem rann því úr greipum á síðustu andartökunum. Þar lá möguleikinn í að koma pressu á Valsliðið.
Mætum tvíefld til leiks
„Við förum vel yfir okkar mál núna þegar tímabilið er á enda og mætum tvíefld til leiks í haust. Okkur þykir gaman að vera í þessum sporum og viljum ná lengra,“ sagði Díana Guðjónsdóttir þjálfari Hauka í samtali við handbolta.is á Hlíðarenda í kvöld.
Sjá einnig:
Sjá einnig:
Um er að ræða einstakt afrek – við spilum frábæran handbolta
Ég er svekkt í kvöld – stolt af okkur
Olís kvenna: Úrslitakeppni, leikjadagskrá
Valur Íslandsmeistari 2024 – annað árið í röð – vann 29 af 30 leikjum
Heldur ótrauð áfram næsta árið – alltaf jafn sætt að vinna
Áttum tvo góða leiki – viljum ná lengra
Kátína þegar tekið var við Íslandsbikarnum annað árið í röð