- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Oddaleikur í undanúrslitum eftir naumt tap

Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur mætir Thüringer HC í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni þýsku 1. deildarinnar í handknattleik kvenna. Blomberg-Lippe tapaði með minnsta mun, 29:28, í Salza-Halle, heimavelli Thüringer HC í kvöld....

Birgir Steinn og samherjar eru fallnir úr leik

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof féllu í dag úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þeir töpuðu með þriggja marka mun, 37:34, fyrir Malmö í Baltiska Hallen í Malmö. IK Sävehof vann ekki leik...

Verður Wille næsti þjálfari Óðins Þórs?

Orðrómur er uppi um að Jonas Wille, fráfarandi þjálfari karlalandsliðs Noregs, taki í sumar við þjálfun svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen sem Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður leikur með. Hrvoje Horvat hefur þjálfað Kadetten Schaffhausen frá 2023. Hann tók við af Aðalsteini...
- Auglýsing -

Molakaffi: Óðinn, Lena, Janus, Tjörvi

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 11 mörk, átta þeirra úr vítaköstum, þegar lið hans, Kadetten Schaffhausen, vann BSV Bern, 31:30, í þriðju og síðustu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik á heimavelli í gær. Kadetten Schaffhausen leikur...

Sigur hjá Ísaki í tvíframlengdri viðureign í undanúrslitum

Ísak Steinsson og samherjar í Drammen HK unnu Elverum í tvíframlengdum háspennuleik, 36:35, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Elverum. Sondre Skovli skoraði sigurmarkið síðla í síðari framlengingunni...

Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð

Orri Freyr Þorkelsson varð í gærkvöld portúgalskur meistari þriðja árið í röð með Sporting Lissabon. Liðið innsiglaði meistaratitilinn með sjö marka sigri á FC Porto á heimavelli, 36:29. Enn þá eru tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Yfirburðir Sporting hafa...
- Auglýsing -

Rúnar og liðsmenn skelltu Kiel – heimasigur hjá Bergischer

Rúnar Sigtryggsson stýrði HSG Wetzlar til sigurs annan leikinn í röð í gær er liðið lagði THW Kiel, 33:25, á heimavelli. Með sigrinum halda Rúnar og liðsmenn áfram að troða marvaðann á leið sinni til björgunar frá falli úr...

Valur vann fyrstu orrustu eftir kaflaskipta viðureign

Valur vann fyrsta úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna gegn ÍBV, 39:33, í kaflaskiptri viðureign í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag. ÍBV var tveimur mörkum yfir, 20:18, að loknum fyrri hálfleik. Næsta viðureign liðanna fer fram í Vestmannaeyjum á...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
- Auglýsing -

Einar Bragi og félagar halda lífi í einvíginu

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad náðu að halda lífi í undanúrslitaeinvígi sínu við Alingsås með naumum sigri á heimavelli, 25:24, í þriðju viðureign liðanna. Sigurinn var IFK Kristianstad lífsnauðsynlegur eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum...

Bjarki Már skoraði fimm mörk gegn smáliðinu

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk í öruggum sigri One Veszprém á Carbonex-Komló, 41:34, í þriðju síðustu umferð ungversku úrvalsdeildarinnar í dag, innan við hálfum öðrum sólarhring eftir að One Veszprém vann Füchse Berlin í fyrri umferð Meistaradeildar Evrópu...

Molakaffi: Jóhannes, Arnór, Elmar, Tumi, Tryggvi, Hannes

Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark í góðum sigri TTH Holstebro á Mors-Thy, 31:30, á heimavelli í fjórðu umferð af fimm í B-riðli átta liða úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. TTH Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, á enn...
- Auglýsing -

Haukur lét til sín taka í Íslendingaslag í Mannheim

Haukur Þrastarson var að vanda driffjöður sóknarleiks Rhein-Neckar Löwen í dag þegar liðið vann MT Melsungen, 30:22, á heimavelli í 30. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Haukur skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar og var markahæsti leikmaður...

Matthías Ingi flytur vestur á Nes

Matthías Ingi Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann kemur til félagsins frá ÍR. Matthías Ingi fæddist fyrir 20 árum og steig sín fyrstu handboltaskref hjá Fylki og lék síðar með Fjölni/Fylki þar til hann skipti...

Magnús Óli fékk heilahristing

Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals fékk heilahristing í þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í gærkvöld. Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals staðfestir tíðindin í viðtali við Vísi í dag. Magnús Óli varð fyrir þungu höfuðhöggi síðla...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -