- Auglýsing -
- Auglýsing -

A-landslið kvenna

- Auglýsing -

Textalýsing: Hvaða þjóðum mætir Ísland á HM kvenna 2025?

Hafist verður handa við að draga í riðla heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í Hertogenbosch (Den Bosch) í Hollandi klukkan 16. Ísland verður á meðal þátttökuliða á HM sem haldið verður í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14....

Dregið í riðla HM kvenna síðdegis

Dregið verður í riðla lokakeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í Hertogenbosch (Den Bosch) í Hollandi klukkan 16 í dag. Nafn Íslands verður á meðal 32 þjóða sem dregið verður úr skálunum fjórum. Heimsmeistaramótið fer fram í Hollandi og Þýskalandi...

Ísland í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður á HM kvenna

Dregið verður í riðla lokakeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í Hertogenbosch í Hollandi fimmtudaginn 22. maí. Íslenska landsliðið verður á meðal þátttökuliða og tekur sæti í þriðja styrkleikaflokki af fjórum. Það þýðir að liðið mun dragast á móti einu...
- Auglýsing -

Dregið í riðla HM kvenna fimmtudaginn 22. maí

Eftir að undankeppni Evrópuhluta umspils heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik lauk í gær hafa landslið frá 31 þjóðum tryggt sér keppnisrétt á mótinu sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14. desember. Alls taka 32 landslið...

Umspil HM kvenna: Leikjadagskrá og úrslit

Leikið verður í umspili fyrir HM kvenna frá miðvikudeginum 9. apríl fram til sunnudagsins 13. apríl. Tuttugu og tvö landslið börðust um 11 sæti á HM sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14....

Láta þess ógetið að leikið var fyrir luktum dyrum

Hvorki Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, né Handknattleikssamband Evrópu, EHF, láta þess getið í fréttum af leikjum Íslands og Ísraels, sem fram fóru í vikunni að viðureignirnar hafi farið fram fyrir luktum dyrum á Ásvöllum. Vitað er að HSÍ var í...
- Auglýsing -

Yfirlýsing kvennalandsliðsins: Hvers vegna fær Ísrael enn að taka þátt?

Yfirlýsing frá kvennalandsliði Íslands í handknattleik „Við leikmenn kvennalandsliðs Íslands í handbolta teljum mikilvægt að koma reynslu okkar á framfæri eftir að hafa spilað tvo umspilsleiki gegn landsliði Ísraels í þessari viku. Það er tímabært að alþjóðleg íþróttahreyfing – og...

Skoruðu báðar í fyrsta landsleiknum

Inga Dís Jóhannsdóttir og Alexandra Líf Arnarsdóttir, leikmenn Hauka, léku sína fyrstu A-landsleiki í gærkvöld þegar íslenska landsliðið vann ísraelska landsliðið öðru sinni í umspilsleik vegna heimsmeistaramótsins. Þær létu ekki þar við sitja heldur skoruðu einnig sín fyrstu mörk...

„Við erum á réttri leið“

„Við mættum klárari til leiks, sérstaklega í gær. Við erum með betra lið, það er á hreinu. En við mættum klárari til leiks og sýndum góðan leik í gær. Í dag var leikurinn aðeins erfiðari, þyngri og hægari,...
- Auglýsing -

Steinunn hefur leikið sinn síðasta landsleik

Steinunn Björnsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik með landsliðinu í handknattleik. Hún staðfesti það m.a. í samtali við Vísir í kvöld eftir að íslenska landsliðið tryggði sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer síðar á þessu ári. „Það var að...

Ísland fer á HM kvenna í þriðja sinn – 20. þjóðin til að tryggja sér farseðil

Íslenska landsliðið tekur í þriðja sinn þátt í heimsmeistaramóti kvenna þegar blásið verður til leiks á mótinu sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14. desember. Ísland var í kvöld 20. þjóðin sem tryggir sér...

Annar stórsigur – farseðill á HM er í höfn

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna hefur tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi undir árslok. Íslenska liðið vann það ísraelska í síðari umspilsleiknum í kvöld örugglega, 31:21, eftir að hafa verið yfir í hálfleik,...
- Auglýsing -

Tvær breytingar gerðar fyrir síðari leikinn

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari í handknattleik kvenna hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum sem mætir Ísrael í kvöld frá fyrri leiknum í gærkvöld. Alexandra og Inga Dís Alexandra Líf Arnarsdóttir úr Haukum hefur verið kölluð inn í hópinn í stað Elísu Elíasdóttur...

Alfa skoraði sín fyrstu mörk fyrir landsliðið

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í gær í stórsigri íslenska landsliðsins á ísraelska landsliðinu í gærkvöld í fyrri umspilsleiknum um sæti á heimsmeistaramótinu, 39:27. Alfa Brá lét sér ekki nægja að skora eitt mark heldur þrjú á...

Elísa tognaði á ökkla – óvíst hvort meiðslin eru alvarleg

Landsliðskonan öfluga Elísa Elíasdóttir meiddist á hægri ökkla á síðustu mínútu sigurleiks Íslands á Ísrael í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik í kvöld, 39:27. Í hraðaupphlaupi rakst Elísa, sem ekki var með boltann, utan í eina af...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -