- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Fer Blær til Danmerkur?

Handknattleiksmaðurinn Blær Hinriksson er einn þeirra leikmanna þýska liðsins Leipzig sem leiddar eru líkur til að yfirgefi liðið falli það úr efstu deild. Ekki blæs byrlega hjá Leipzig-liðinu sem rekur lestina þegar tvær umferðir eru eftir. Danska handboltasíðan Europamester...

Óðinn Þór markahæstur – tap í fyrsta úrslitaleiknum

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu í dag á heimavelli fyrsta úrslitaleiknum við HC Kriens-Luzern um meistaratitilinn í handknattleik karla í Sviss, 37: 33. Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten með níu mörk, eitt þeirra úr...

Oddaleikur um meistaratitilinn hjá íslensku landsliðskonunum

Blomberg-Lippe tryggði sér í dag oddaleik við Borussia Dortmund um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með sigri í annarri viðureign liðanna á heimavelli, 28:27. Dortmund vann fyrsta leikinn með sömu markatölu fyrir viku. Oddaleikur liðanna fer fram eftir viku...
- Auglýsing -

Elín Klara er sænskur meistari

Elín Klara Þorkelsdóttir er sænskur meistari í handknattleik kvenna með liði sínu IK Sävehof eftir sigur á meisturum síðasta árs, Skara HF, 29:28, í þriðja úrslitaleik liðanna í Partille í dag. Um sannkallaða maraþonviðureign var að ræða því ekki...

Meistararnir halda sigurgöngu sinni áfram

Meistarar SC Magdeburg létu Hauk Þrastarson og liðsfélaga í Rhein-Neckar Löwen ekki stöðva sig á sigurgöngu í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru atkvæðamiklir í þriggja marka...

Óvíst hvað tekur við hjá Bjarka Má

Óvíst er hvað tekur við hjá landsliðsmanninum Bjarka Má Elíssyni í sumar þegar samningur hans við ungverska meistaraliðið One Veszprém rennur út. Félagið tilkynnti í gær, það sem legið hefur fyrir allt síðan í haust, að hann hyrfi á...
- Auglýsing -

Molakaffi: Einar, Monsi, Viktor, Tjörvi

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk í sjö marka tapi IFK Kristianstad í viðureign við Malmö, 42:35, í gær. Um var að ræða aðra viðureign liðanna í úrslitum um sænska meistaratitilinn. Staðan er nú jöfn, hvort lið hefur einn...

Fóru taplausir í gegnum tímabilið í Portúgal

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fimm mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum, í 12 marka sigri Sporting Lissabon á Benfica, 34:22, í gær í lokaumferð úrslitakeppni efstu fjögurra liða portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikurinn skipti ekki miklu máli því Sporting...

Mikilvægur sigur hjá Rúnari í fallbaráttu – Teitur Örn öflugur

Liðsmenn Rúnars Sigtryggssonar stigu í kvöld stórt skref í áttina til þess að halda sæti sínu í þýsku 1. deildinni er þeir lögðu HC Erlangen, 29:26, á heimavelli. HSG Wetzlar hefur þar með tyllt sér í 16. sæti deildarinnar...
- Auglýsing -

Benedikt Gunnar fór hamförum

Benedikt Gunnar Óskarsson fór hamförum í sigri Kolstad á Drammen í fyrstu viðureign liðanna um sigurlaunin í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag, 34:30. Leikið var í Þrándheimi. Benedikt Gunnar skoraði níu mörk, ekkert þeirra úr vítaköstum. Hann...

Donni leikur til úrslita í Danmörku

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF eru komnir í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handknattleik karla. Þeir unnu GOG, 33:26, í annarri viðureign liðanna í dag. Leikið var í Arena Svendborg, heimavelli GOG á Fjóni. Donni...

Framtíð Alfreðs komin á hreint – framlengir til 2028

Þýska handknattleikssambandið hefur ákveðið að kveða niður kjaftasögur í kringum framtíð Alfreðs Gíslasonar sem þjálfara karlalandsliðsins og semja við hann að nýju. Alfreð hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028. Fyrri samningur...
- Auglýsing -

Haukur verðlaunaður með nýjum samningi

Haukur Þrastarson hefur skrifað undir nýjan samning við Rhein-Neckar Löwen sem gildir til næstu tveggja ára. Hann hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í þýsku 1. deildinni. Auk þess að vera langsamlega stoðsendingahæstur í þýsku deildinni með 177...

Góður heimasigur hjá Elmari

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen lyftu sér upp í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í kvöld eftir tveggja marka sigur á TV 05/07 Hüttenberg á heimavelli, 35:33. Hüttenberg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20:18. Elmar skoraði...

Myndskeið: Íslendingatríóið er þýskur meistari

SC Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handknattleik í fjórða sinn. Liðið tryggði sér meistaratitilinn með eins marks sigri á Flensburg, 31:30, í GETEC Arena í Magdeburg í kvöld. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með liðinu; Elvar Örn Jónsson,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -