- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Íslandsbikarinn blasir við Val

Valur er kominn í væna stöðu eftir að hafa lagt ÍBV öðru sinni í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 25:23. Þar með vantar Valsliðið aðeins einn vinning í viðbót til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn fjórða...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Þegar er uppselt á úrslitaleik Vals og FH

Uppselt er á oddaleik Vals og FH í úrslitum Olísdeildar karla sem fram fer í N1 höllinni á Hlíðarenda næstkomandi fimmtudagskvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og þar ræðst hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitlinum. Miðasala á leikinn hófst í hádeginu í dag...
- Auglýsing -

Hákon Daði liggur undir feldi

Samningur Hákons Daða Styrmissonar, vinstri hornamanns ÍBV, er senn á enda og því er honum frjálst að róa á önnur mið. Hákon Daði býr á höfuðborgarsvæðinu ásamt unnustu sinni og barni þeirra og því er ekki víst hvar hann...

Miðasala er hafin á úrslitaleik Vals og FH

Miðasala hófst klukkan 12 á hádegi í dag á oddaleik Vals og FH á fimmtudaginn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Úrslitaleikurinn fer fram í N1-höll Vals á Hlíðarenda og hefst klukkan 19.30 á fimmtudagskvöld. Uppfært: Aðgöngumiðar seldust upp á skömmum tíma. Sjá...

Daníel Freyr tjáir sig um dramatíkina

Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, kom mikið við sögu á síðustu augnablikum fjórða leiks liðsins gegn Val í úrslitum Olísdeildarinnar í Kaplakrika í gærkvöldi. Þegar fáar sekúndur voru eftir af síðari framlengingu var staðan 37:36 og Daníel Montoro, leikmaður Vals,...
- Auglýsing -

Dagur Fannar áfram í Úlfarsárdal

Dagur Fannar Möller, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Fyrri samningur átti að renna út sumarið 2028 og er því um eins árs framlengingu að ræða. Dagur Fannar er 23 ára gamall...

ÍBV og Valur mætast öðru sinni í kvöld

ÍBV og Valur mætast í öðrum leik úrslitaeinvígis Olísdeildar kvenna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 18 í kvöld. Valur er 1:0 yfir í einvíginu og sem fyrr þarf þrjá vinninga til þess að hampa Íslandsmeistaratitlinum. Fyrsta leik úrslitanna lauk með 39:33...

Myndskeið: Dramatíkin í Kaplakrika

Í tvíframlengdum háspennuleik FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla réðust úrslitin á dramatíkskum síðustu sekúndum. Fyrir mörgum virtist Valur hafa jafnað metin þegar 10 sekúndur voru til leiksloka þegar Daníel Montoro kom boltanum á ævintýralegan hátt fram...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: FH – Valur, 37:36

Úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld þegar Valur og FH leiða saman kappa sína í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 19.30. FH jafnaði metin, 2:2, í vinningum talið með naumum sigri á Val, 37:36, í Kaplakrika í...

Hreinn úrslitaleikur framundan – Daníel Freyr hetja á ögurstundu

Hreinn úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld í N1-höllinni á Hlíðarenda á milli FH og Vals. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.FH vann hreint ævintýralegan sigur á Val í Kaplakrika í kvöld í tvíframlengdum leik, 37:36....

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar eru sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
- Auglýsing -

Natasja og Ísak Logi best hjá Stjörnunni

Lokahóf meistaraflokka Stjörnunnar fór fram í Hekluhöllinni þann 30. apríl. Leikmenn voru verðlaunaðir og um leið þakkað fyrir afstaðið tímabil. Meistaraflokkur kvenna:Besti leikmaður: Natasja Hammer.Efnilegasti leikmaðurinn: Bryndís Hulda Ómarsdóttir. Meistaraflokkur karla:Besti leikmaður: Ísak Logi Einarsson.Efnilegasti leikmaðurinn: Matthías Dagur Þorsteinsson. Veislugestir völdu einnig þann...

Brynjólfur Snær lætur gott heita

Brynjólfur Snær Brynjólfsson, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann er 33 ára hægri hornamaður sem lék allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Haukum. Brynjólfur Snær greindi frá tíðindunum í samtali við Handkastið. Hann varð bikarmeistari með...

Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld

Fjórði leikur úrslitaeinvígis FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í kvöld klukkan 19.30 í Kaplakrika. Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir Val, sem getur því með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. FH þarf á sigri að halda til að...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -