Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad eru í kjörstöðu í kapphlaupinu við Malmö um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla. IFK vann þriðju viðureign liðanna í Kristianstad Arena í kvöld með fimm marka mun, 34:29, og hefur þar með tvo vinninga gegn einum Malmö-liðsins. Einar Bragi var markahæstur leikmanna IFK með átta mörk í 12 skotum.
Malmö Arena á föstudaginn
Næsta viðureign liðanna verður háð í Malmö Arena á föstudaginn. Takist Einari Braga og samherjum að fylgja sigrinum í kvöld eftir með vinningi á föstudaginn verða þeir sænskir meistarar í tíunda skipti og í fyrsta sinn í þrjú ár.
Viðbúið er að leikmenn Malmö veiti harða mótspyrnu á heimavelli. Liðin eru að mörgu leyti áþekk að getu en þau fengu jafn mörg stig í deildarkeppninni í vetur. IFK varð deildarmeistari á betri innbyrðis úrslitum.



