- Auglýsing -
Haukar urðu í dag Íslandsmeistarar í 3. flokki kvenna eftir sigur á Val í úrslitaleik sem fram fór í íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal í kvöld, 29:23.
Staðan í hálfleik var 12:9, Haukum í vil. Haukar eru einnig bikarmeistarar í þessum aldursflokki.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/347785559_773917261065574_8050113986806722298_n-1015x1024.jpg)
Maður leiksins var valin Elín Klara Þorkelsdóttir leikmaður Hauka. Hún skoraði 10 mörk í leiknum og var að vanda allt í öllu, jafnt í vörn sem sókn.
- Auglýsing -