- Auglýsing -
Haukar urðu í dag Íslandsmeistarar 4. flokks karla eldri eftir sigur á ÍR 31:30 í spennandi úrslitaleik í íþróttahúsi Fram í Úlfarsársdal. Staðan í hálfleik var 13:11, ÍR í vil. Haukar náðu fjögurra marka forskoti skömmu fyrir leikslok, 30:26, sem ÍR tókst ekki að vinna upp þrátt fyrir ákafar tilraunir.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/347627101_221882243912397_6456117436198503053_n-1018x1024.jpg)
Maður leiksins var valinn Freyr Aronsson leikmaður Hauka. Hann skoraði 12 mörk.
- Auglýsing -