- Auglýsing -
KA/Þór varð í dag Íslandsmeistarar 4. flokks kvenna eftir sigur á Val, 28:26, í æsispennandi framlengdum leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 22:22. Í hálfleik var KA/Þór tveimur mörkum yfir, 13:11. KA/Þór varð einnig deildarmeistari.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/347797221_579496840953746_43119319363094262_n-1024x1017.jpg)
Maður leiksins var valin Bergrós Ásta Guðmundsdóttir leikmaður KA/Þórs. Hún skoraði 14 mörk.
- Auglýsing -