- Auglýsing -
Hulda Bryndís Tryggvadóttir leikur ekki meira með KA/Þór á keppnistímabilinu sem er nýlega hafið. Hún gengur með sitt fyrsta barn og er þar með komin í fæðingarorlof frá handboltanum.
Hulda Bryndís tók þátt í tveimur fyrstu leikjum KA/Þórs í Olísdeildinni, gegn ÍBV á útivelli og við Hauka á heimavelli og skoraði þrjú mörk.
Hulda Bryndís hefur undanfarin ár verið hlekkur í sterku liði KA/Þórs og varð m.a. Íslands-, bikar- og deildarmeistari með liðinu á síðasta ári þegar engin bönd héldu Akureyrarliðinu. Um leið er um er að ræða enn eina breytinguna á KA/Þórsliðinu frá síðustu tímabilum en í sumar réru nokkrir leikmenn liðsins á ný mið og aðrir komu í þeirra stað.
Hulda Bryndís er önnur handknattleikskonan á nokkrum dögum sem dregur sig í hlé frá handboltanum vegna þess að hún er ekki kona einsömul. Í síðustu viku var sagði Karen Knútsdóttir landsliðskona og Framari frá því að hún verður ekkert með Fram vegna þess að hún væntir barns í kringum næstu páska.
- Auglýsing -