Joel Birlehm, markvörður Rhein-Neckar Löwen og samherji Arnórs Snæs Óskarssonar og Ýmis Arnar Gíslasonar, var einstaklega óheppinn í gærkvöld í viðureign gegn Benfica í Evrópudeildinni í handknattleik í gærkvöld.
Miguel Sanchez-Migallon Naranjo, leikmaður Benfica, kastaði boltanum í þverslá í hraðaupphlaupi. Af slánni hrökk boltinn hátt upp í loft en féll svo niður á aðra öxl Birlehm og þaðan í netið. Sannaðist enn einu sinni að allt sem fer upp kemur niður.
Myndskeið af atvikinu óheppilega er hér fyrir neðan.
Is this the strangest goal of the handball seasons so far? 👀 😆#ehfel #allin #elm pic.twitter.com/4i1QW8nU0E
— EHF European League (@ehfel_official) November 14, 2023
Rhein-Neckar Löwen vann leikinn sem fram fór í Lissabon með einu marki, 36:35, og er í efsta sæti A-riðils. Sigurmarkið var skorað á síðustu sekúndu. Myndskeið af sigurmarkinu og aðdraganda þess er einnig að finna hér fyrir neðan.
Óðinn Þór atkvæðamikill – Fyrrverandi samherjar mættust í Lissabon
Evrópudeild karla ’23 – úrslit 3. umferðar – staðan
Fjórir Íslendingar á ferðinni – þrír í sigurliðum
15 seconds left, all level and then this happened…
— EHF European League (@ehfel_official) November 14, 2023
The #ehfel is lit 🔥
What an ending, absolute scenes 🙌 #ehfel #allin #elm @RNLoewen pic.twitter.com/f34wZkR8wz