- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sara verður áfram á Ásvöllum

- Auglýsing -

Sænska handknattleikskonan Sara Odden hefur framlengt samning sinn við Hauka. Sara hefur verið ein traustasta stoð Haukaliðsins undanfarin ár. Hún gekk fyrst til liðs við Hauka haustið 2019 og lék með liðinu í 3 ár. Sara reyndi hún fyrir sér hjá BSV Sachsen Zwickau í Þýskalandi um skeið en snéri aftur til Hauka í janúar 2023 og hefur hún leikið með liðinu síðan.

„Sara er klár í slaginn áfram með liðinu en hún er frábær liðsmaður og mikil fyrirmynd sem gefur mikið af sér til yngri iðkenda félagsins. Það er því ánægjulegt að Sara framlengi samning sinn við félagið,“ segir í tilkynningu Hauka.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -